Menningarmál

Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og norska menningarmálaráðuneytisins. Hið árlega framlag er nú um 1.300.000 norskar krónur.

Lesa meira
 

Launasjóður fræðiritahöfunda

Meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi.

Lesa meira
 

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) auglýsir verkefnastyrki

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna auglýsir til umsóknar styrki til verkefna sem tengjast málefnum stofnunarinnar fyrir árin 2010-2011. Lesa meira
 

Menningarsjóður Póllands og EES/EFTA-ríkjanna

Stofnaður hefur verið menningarsjóður, sem ætlað er að auka samskipti milli Póllands og EES/EFTA – ríkjanna Íslands, Lichtenstein og Noregs. Sjóðurinn mun starfa árin 2008 til 2010 og hafa til ráðstöfunar um 400 millj. kr., sem deilast á starfstímann. Lesa meira
 

Umsóknir um styrki sem Alþingi veitti áður

Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur.

Lesa meira
 

Þjóðhátíðargjöf Norðmannna

Þjóðhátíðargjöf Norðmannna

Lesa meira
 



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica