Norræna skólahlaupið
Markmið - með norræna skólahlaupinu er leitast við:
- Að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu
- Að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan
Tími:
Hlaupið skal fara fram á tímabilinu 1. október 2006 - 1. febrúar 2007.
Undirbúningur:
Gert er ráð fyrir að nemendur fái tækifæri til þess að æfa undir hlaupið á skólatíma eða utan hans. Þeir sem skipuleggja og sjá um hlaupið verða að gæta þess að hlaupurunum sé engin hætta búin af umferð. Hlauparar mega velja sér vegalengd: 2,5 km, 5 km eða 10 km. Hver skóli skipuleggur hlaupið fyrir sig.
Keppni:
Norræna skólaíþróttanefndin lætur gera viðurkenningarskjöl til þátttakenda og skólar fá einnig viðurkenningu.
- Norræna skólahlaupið 2006 - dreifibréf
- Norræna skólahlaupið 2005 - dreifibréf
- Skilagrein skóla 2006 (DOC- 26,5KB) (PDF - 90KB)
Leiðbeiningar fyrir Acrobat á íslensku
Vinsamlegast athugið að umsóknareyðublaðið er með PDF-sniði sem varðveitir uppsetningu þess. Sniðið krefst forritsins Acrobat Reader sem hægt er að nálgast með því að smella á myndina hér við hliðina. ![]()
