Menningarmál

Tónlistarsjóður

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. skv. lögum nr. 76/2004. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, svo sem tónlistarflutnings, tónlistarhópa, tónlistarhátíða, rannsókna og skráningu á tónlist, varðveislu tónlistar og annarrar tónlistarstarfsemi.

Markaðs- og kynningardeild veitir m.a. styrki til markaðssetningar og kynningarverkefna í tengslum við íslenska tónlist og tónlistarmenn og til annarra verkefna sem miða að kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarmönnum innan lands og erlendis.

Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

Styrkir úr tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn.

  • Umsókn skal m.a. innihalda nákvæmar upplýsingar um umsækjanda, samstarfsaðila og nafn þess sem annast samskipti við sjóðinn, upplýsingar um starfsferil, faglegan og listrænan bakgrunn umsækjanda og annarra er að verkefninu koma, lýsingu á verkefninu, markmiðum þess og samhengi við tilgang sjóðsins. Einnig verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um aðra styrki sem verkefnið hefur hlotið eða sótt um. Staðfest gögn til stuðnings umsókninni skulu fylgja ef þau eru fyrir hendi.
  • Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.
  • Öll tilskilin fylgigögn þurfa að berast með umsókn. Umsóknir og fylgigögn sem berast eftir að umsóknarfrestur er útrunninn verða ekki teknar til umfjöllunar.
  • Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu innan sex vikna frá auglýstum skilafresti.
  • Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu eða hér að neðan. Umsóknirnar skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.

Best er að vista umsóknareyðublaðið í tölvu umsækjenda og vinna það þar. Að því loknu er það prentað út og sent ráðuneytinu. Þeir sem ekki hafa tök á að fylla í umsóknareyðublaðið í tölvu eru vinsamlega beðnir um að skrifa með prentstöfum eða öðrum skýrum hætti. Athugið að skila þarf umsókn í þríriti og að þau skulu öll vera undirrituð. Nánari leiðbeiningar eru á umsóknareyðublaðinu.

Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum til tónlistarsjóðs, menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.



Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica