Menningarmál

Launasjóður fræðiritahöfunda

Rannsóknamiðstöð Íslands sér um rekstur og vörslu Launasjóðs fræðiritahöfunda í umboði stjórnar sjóðsins.

Meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi.

Stjórn sjóðsins er skipuð af menntamálaráðherra til tveggja ára í senn. Einn fulltrúi er tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands og annar fulltrúi er tilnefndur af Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna. Formaður er skipaður án tilnefningar.

Stjórnin úthlutar árlega starfslaunum úr sjóðnum. Starfslaun eru veitt til hálfs árs eða eins árs, til tveggja ára eða þriggja. Þeir sem hljóta starfslaun skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Þá eiga starfslaunaþegar að skila skýrslu um störf sín á starfslaunatímanum eigi síðar en ári eftir að honum lýkur.

Vinnureglur stjórnar Launasjóðs fræðiritahöfunda


Stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda

Stjórn sjóðsins frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2009.

  1. Atli Harðarson, formaður, skipaður án tilnefningar.
  2. Þorgerður Einarsdóttir, varaformaður, tilnefnd af Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
  3. Guðni Th. Jóhannesson, tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands.

Varamenn eru:

  1. Sólrún Jensdóttir, skipuð án tilnefningar.
  2. Svavar Hrafn Svavarsson, tilnefndur tilnefndur af Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
  3. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, tilnefnd af Rannsóknamiðstöð Íslands.


Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica