Menningarmál
Listir- og önnur menningarmál
Menntamálaráðuneyti veitir styrki sem það ráðstafar á grundvelli umsókna til ýmissa verkefna á sviði menningarmála, þ.m.t. íþrótta-og æskulýðsmála. Um er að ræða fé á fjárlagaliðum 02-919 1.98 Söfn, ýmis framlög menntamálaráðuneytis, 02-983 1.10 Fræðistörf, 02-984 1.10 Norræn samvinna og 02-999 1.98 Ýmis framlög menntamálaráðuneytis. Umsóknir verða afgreiddar í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember og er þá miðað við þær sem fyrirliggjandi eru við upphaf þessara mánaða.
Styrkir eru veittir til verkefna á sviði menningarmála sem falla ekki undir aðra sjóði eða fjárveitingar á vegum ríkisins.
Umsóknir skulu gerðar á umsóknareyðublöðum sem fást á vef menntamálaráðuneytis á umsóknarvef ráðuneytisins eða í móttöku þess að Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Umsókn skal m.a. innihalda upplýsingar um umsækjanda og aðra er að verkefninu koma, lýsingu á verkefninu og markmiðum þess, verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um aðra styrki sem verkefnið hefur hlotið eða sótt hefur verið um. Ekki verða veittir styrkir til viðburða eða verkefna sem þegar hafa átt sér stað. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk frá menntamálaráðuneyti er ný umsókn hans að jafnaði einungis tekin til umfjöllunar hafi hann skilað fullnægjandi greinargerð vegna eldri verkefna. Eyðublöð fyrir greinargerðir er að finna á vef ráðuneytisins.
- Umsóknareyðublað (DOC - 308KB) (PDF - 90KB)
- Greinargerð (XLS - 24,5KB)
Vakin er sérstök athygli á að hægt er að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsokn.stjr.is
Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu félags eða samtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.
Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir listir og önnur menningarmál.
Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.
