Menntamál

Tungumálamiðstöðin í Graz - Auglýsing eftir umsóknum um verkefni (Call for Proposals 2004-2007)

Tungumálamiðstöðin í Graz auglýsir eftir umsóknum um verkefni og aðgerðir - Call for Proposals



Tungumálamiðstöðin í Graz (European Centre for Modern Languages) hefur auglýst eftir umsóknum um verkefni og aðgerðir (Call for proposals) vegna nýrrar starfsáætlunar fyrir árin 2004-2007. Umsóknarfrestur er til 30. júní 2003. Yfirskrift nýju starfsáætlunarinnar er Languages for social cohesion. Language education in a multilingual and multicultural Europe. Áherslusvið eru þrjú: vitundarvakning, þjálfun og rannsóknir og þróun.
Fyrrnefnda auglýsingu er að finna á vefsíðu Tungumálamiðstöðvarinnar. Slóðin er: ecml.at. Einnig er bent á slóðina http://help.ecml.at þar sem finna má frekari upplýsingar og aðstoð við gerð umsókna. Einnig hefur verið komið upp umræðuvettvangi: http://www.ecml.at/interactive/2MTP_forum.asp til að stuðla að alþjóðlegu samstarfi. Þar gefst t.d. möguleiki á að leita eftir samstarfsaðilum um verkefni.
Auglýsinguna má einnig nálgast á ensku á vef menntamálaráðuneytisins menntamalaraduneyti.is. Þar er einnig að finna upplýsingar á íslensku um undirbúning, frágang og skil umsókna.


Í auglýsingu Tungumálamiðstöðvarinnar er m.a. að finna upplýsingar um:

Hlutverk stofnunarinnar og starfsemi
Áherslur í starfseminni fyrir tímabilið 2004-2007
Tegund verkefna og dæmi um verkefni
Umsóknarferli (tímaramma, viðmið og fyrirkomulag við val á umsóknum o.fl)

Call for Proposal 2004-2007(doc - 188KB)
Leiðbeiningar um undirbúning og frágang umsókna





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica