Menntamál
Tungumálamiðstöðin í Graz - Leiðbeiningar
Undirbúningur og frágangur umsókna í tengslum við auglýsingu Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz eftir umsóknum (Call for proposals) vegna nýrrar starfsáætlunar 2004-2007
Sérfræðingar sem ráðgera að senda inn umsóknir eru beðnir að kynna sér vel innihald gagna og reglur um frágang á umsóknum, sem gerð er grein fyrir í meðfylgjandi auglýsingu eftir umsóknum. Nánari upplýsingar og aðstoð, ásamt umsóknareyðublaði sem nota skal, er að finna í gagnagrunni á vefsíðu Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz, þ.e. í "Help Files" á slóðinni http://help.ecml.at
Mælt er með því að haft sé samband við viðkomandi landsfulltrúa í stjórnarnefnd Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz, áður en umsókn er send til stofnunarinnar. Undir öllum kringumstæðum skal senda viðkomandi fulltrúa afrit af umsókn (heimilisföng eru á vefsíðunni).
Til að stuðla að alþjóðlegu samstarfi strax á undirbúningsstigi umsókna hefur Tungumálamiðstöðin komið upp umræðuvettvangi á vefsíðu sinni: http://www.ecml.at/interactive/2MTP_forum.asp
Sérfræðingar eru hvattir til að nýta sér þennan vettvang til upplýsingaöflunar og skoðanaskipta, og til að leita eftir samstarfsaðilum við verkefni, þátttakendum í hópstarf, o.s.frv.
Á því tímabili sem fjögurra ára starfsáætlunin spannar (2004-2007) mun Tungumálamiðstöðin í Graz aðeins taka til greina umsóknir sem inn komu vegna þessarar auglýsingar nú. Vinsamlega notið einungis fyrrnefnt eyðublað á vefsíðunni fyrir umsóknir. Hafa skal textann einfaldan, hnitmiðaðan og auðskiljanlegan og hámarkslengd umsóknar er 10 blaðsíður.
Umsóknina skal senda sem viðhengi í tölvupósti til submission@ecml.at eigi síðar en 30. júní 2003. Við hvetjum þó alla til að senda umsóknir sínar eins fljótt og unnt er. Við sendum staðfestingu á móttöku umsókna.
Aðalskrifstofa og framkvæmdastjórn stjórnarnefndar Tungumálamiðstöðvarinnar, ásamt ýmsum sérfræðingum, munu annast forval á umsóknum í ágúst 2003. Lokaval og staðfesting á starfsáætlun mun fara fram á fundi stjórnarnefndar í október 2003.
Umsækjendur munu síðan fá upplýsingar um niðurstöður að því loknu. Einnig kann að verða haft samband við þá til að afla frekari upplýsinga um umsóknir þeirra á þessu tímabili; það er því mikilvægt að skila inn heimilisfangi (og síma- og fax-númeri eða netfangi) þar sem hægt er að ná í þá yfir sumarið.
Starfsáætlun næstu fjögurra ára verður gefin út í desember 2003.
Við hlökkum til að fá umsóknir í hendur. Vinsamlega beinið spurningum um umsóknarferlið til Tungumálamiðstöðvarinnar: submission@ecml.at
Fulltrúi framkvæmdastjóra / Verkefnastjóri
Tungumálamiðstöðinni í Graz

