Menntamál

Norrænir styrkir til að efla mennta- og menningarsamstarf við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sér um þessa styrki. Nánari upplýsingar er að finna á vef Alþjóðaskrifstofunnar.

Upphaf
Í október 1990 ákvað Norræna ráðherranefndin að veita 5 millj. dkr. til að efla samstarf milli Eystrarsaltsríkjanna og Norðurlanda á sviði mennta- og menningarmála. Árið 1994 var samstarfið víkkað út til Norðvestur-Rússlands.


Markmið
Markmið styrkveitinganna er að þróa langtíma samstarfsverkefni á sviði æðri menntunar, rannsókna og frjálsra félagasamtaka. Samstarfinu er ætlað að stuðla að áframhaldandi framförum á sviði mennta og menningar í þessum heimshluta, styrkja lýðræðisþróun og treysta samstarfið milli Eystrasaltsríkjanna sjálfra og Norðvestur-Rússlands.

Styrkir eru veittir til samstarfsverkefna sem hafa að markmiði að stuðla að langtíma netsamstarfi, annars vegar milli stofnana á sviði æðri menntunar og rannsókna, og hins vegar milli frjálsra félagasamtaka:


A. Samstarfsverkefni á sviði æðri menntunar og rannsókna

Samstarf milli stofnana á sviði æðri menntunar og rannsókna, með þátttöku rannsóknarmanna, kennara og stúdenta.
Hægt er að sækja um styrki til verkefna í öllum greinum, en eftirtalin viðfangsefni njóta þó forgangs:

  1. Norðurlandamál
  2. Menning og þjóðfélag (greinar sem lúta að menningarrannsóknum og lýðræðisþróun, og viðfangsefni tengd Evrópusambandinu)
  3. Umhverfistækni (allar greinar er snúa að umhverfismálum)

Styrkir hafa verið veittir til eins árs í senn, að hámarki í tvö ár. Að þessu sinni verða styrkir þó aðeins veittir til eins árs þar sem endurskoðun á styrkáætluninni stendur yfir.

B. Samstarfsverkefni á sviði frjálsra félagasamtaka

Samstarfið er opið öllum frjálsum félagasamtökum, en áhersla er lögð á samvinnu frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndunum og systursamtaka þeirra í Eystrasaltsríkjunum og í Norðvestur-Rússlandi. Hægt er að sækja um styrki til samstarfsverkefna í öllum greinum, en eftirtalin viðfangsefni njóta þó forgangs:

  1. Heilbrigðis- og velferðarmál
  2. Börn og ungt fólk
  3. Konur og jafnrétti

Styrkir hafa verið veittir til eins árs í senn eða til styttri tíma, en að hámarki í tvö ár. Að þessu sinni verða styrkir þó ekki veittir til lengri tíma en eins árs þar sem endurskoðun á styrkáætluninni stendur yfir.

Skilyrði fyrir styrkveitingu
Að samstarfsverkefnum skulu koma a.m.k. tveir aðilar frá jafnmörgum ríkjum Norðurlandanna auk a.m.k. eins aðila frá Eystrasaltsríkjunum eða Norðvestur-Rússlandi.

Aðeins í undantekningartilvikum eru veittir styrkir til einstaklinga.

Hverjir geta tekið þátt?
Allar stofnanir á sviði háskólamenntunar, vísinda og rannsókna og frjáls félagasamtök.

Hvaða lönd?
Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Eistland, Litháen, Lettland, Norðvestur- Rússland (St. Pétursborg, Kaliningrad og Barentshafssvæðið).


Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá:
Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins
Neshaga 16
107 Reykjavík

Einnig á eftirtöldum heimasíðum:

Vefur Alþjóðakrifstofu háskólastigsins

Vefur Norrænu ráðherranefndarinnar









Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica