Menntamál
Styrkir til háskólanáms og rannsókna í Rússlandi
Stjórnvöld í Rússlandi hafa á síðustu árum boðið fram einn styrk handa Íslendingum til grunnnáms í háskóla og þrjá til framhaldsnáms og/eða rannsókna í Rússlandi.
Skilyrði
Umsækjendur um styrki til grunnnáms skulu að öðru jöfnu vera yngri en 25 ára og umsækjendur um styrk til framhaldsnáms og/eða rannsókna skulu vera yngri en 35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi.
Styrkfjárhæð
Fyrrnefndu styrkirnir nema 400 rúblum á mánuði (u.þ.b. 900 ísl. kr.) en þeir síðarnefndu 1.000 rúblum á námuði (u.þ.b. 2.200 ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir herbergi á stúdentagarði, en þeir greiða sömu leigu og rússneskir námsmenn. Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.
Umsóknarfrestur
Styrkirnir hafa að undanförnu verið auglýstir lausir til umsóknar í febrúar/mars með 4-6 vikna umsóknarfresti. Auglýsingin er birt í Morgunblaðinu og á vef menntamálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar
og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík (s.: 545 9500, bréfasími: 562 3068, netfang: postur@mrn.stjr.is). Umsóknum skal fylgja staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum og læknisvottorði.
