Menntamál
Sprotasjóður
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprotasjóð á vefslóðinni www.sprotasjodur.is. Hægt er að sækja um styrki í sjóðinn frá 1.- 29. febrúar nk.
Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni eru:
a) Þróun skólanámskrár með hliðsjón af nýrri menntastefnu
b) Virkt lýðræði, mannréttindi og samskipti í skólum
Umsóknir sem falla utan áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun.
- Fyrir skólaárið 2012 – 2013 verða til úthlutunar allt að 45 milljónir kr.
- Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Sími: 4608904 eða í tölvupósti á sv@unak.is
