Framhaldsskólar
Samræmd próf og réttur nemenda á inntöku í framhaldsskóla - júní 2001
Spurt var um hvort nemandi, sem skráður er í samræmd próf hafi lokið grunnskóla þótt hann mæti hvorki í samræmt próf né sjúkrapróf. Einnig er spurt hvort hann eigi þá rétt á inntöku í framhaldsskóla.
Í 1. gr. reglugerðar nr. 98/2000 segir að allir þeir sem hafa lokið námi í grunnskóla eða öðru jafngildi námi skulu eiga kost á að hefja nám í framhaldsskóla.
Í 2. gr áðurnefndrar reglugerðar segir að nemendur, sem lokið hafa skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla og einnig samræmdum prófum a.m.k. í íslensku og stærðfræði, geti innritast á brautir framhaldsskóla, svo fremi að ekki séu gerðar viðbótakröfur um árangur í tilteknum námsgreinum, sbr. 3., 4., og 5. gr. enda fullnægi þeir þeim skilyrðum sem tiltekin eru í greininni.
Í 6. gr. reglugerðarinnar segir að þeir nemendur sem ekki uppfylla skilyrði reglugerðar þessarar til inntöku á einstakar námsbrautir samkvæmt 2., 3., 4. og 5. gr., eigi kost á að hefja nám á almennri námsbraut eða í sérdeildum. Að fullnægðum tilteknum skilyrðum um námsárangur að mati skólameistara viðtökuskóla geta þeir síðan haldið áfram námi á öðrum brautum framhaldsskóla.
Í 7. gr. reglugerðarinnar segir ennfremur að nemendur sem fullnægja inntökuskilyrðum samkvæmt reglugerð þessari hafa forgang að innritun á viðkomandi námsbraut. Skólameistari getur heimilað nemendum, sem ekki uppfylla inntökuskilyrði brautar að fullu að hefja nám á viðkomandi námsbraut ef hann telur líkur á því að þeir standist þær kröfur sem gerðar eru um námsárangur.
Menntamálaráðuneytið lítur því svo á að hafi nemandi lokið skyldunámi í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla, hvort sem hann hefur lokið samræmdum prófum eða ekki, eigi hann rétt á að hefja nám í framhaldsskóla, annað hvort á einstökum námsbrautum samkvæmt 2., 3., 4. og 5. gr. reglugerðar nr. 98/2000, á almennri námsbraut eða í sérdeild.
Á það skal bent að samkvæmt 9. gr. sömu reglugerðar er inntaka nemenda í framhaldsskóla á ábyrgð skólameistara, sem samþykkir eða synjar umsóknum um skólavist. Synji skólameistari umsókn á umsækjandi rétt á rökstuðningi hans fyrir þeirri ákvörðun.
(júní 2001)

