Framhaldsskólar
Mat á móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku - apríl 2001
Mat á móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku við lok grunnskóla og við inntöku í framhaldsskóla
Spurt var eftirfarandi spurninga:
1. Er nokkuð sem hindrar að útskrifa nemendur úr grunnskóla þar sem móðurmál er metið sem þriðja tungumálið?
2. Er nokkuð því til fyrirstöðu að framhaldsskólinn meti móðurmál þessara nemenda sem þriðja tungumálið t.d. í staðinn fyrir dönsku. Þannig að þessir nemendur geti t.d. hafið nám á málabraut uppfylli þeir önnur skilyrði um inngöngu á þá námsbraut.
1.
Á það skal bent að þegar menntamálaráðherra veitir undanþágu frá einstökum námsgreinum er það gert á grundvelli 5. mgr. 35. gr. laga nr. 66/1995. Í sömu grein er ennfremur bent á að menntamálaráðherra er heimilt að viðurkenna nám utan grunnskóla sem jafngildi náms í skyldunámgrein. Ef nemandi sem er undanþeginn frá skyldunámi í námsgrein sem prófað er úr samræmt á hann hins vegar ekki rétt á samræmdu prófi í annarri námsgrein.
Í 5. grein reglugerðar um valgreinar í grunnskólum, nr 387/1996, kemur fram að heimilt er að bjóða nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, eigið móðurmál sem valgrein í 9. og 10. bekk enda séu ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar uppfyllt. Einnig er skólum heimilt að viðurkenna skipulagt nám þessara nemenda í móðurmáli, utan grunnskóla, sem valgrein.
Af framansögðu er því ljóst að hægt er að meta móðurmál nemenda, sem hafa annað móðurmál en íslensku, fullgilda námsgrein í grunnskóla, hvort sem námið fer fram innan eða utan skólans.
2.
Samkvæmt 7. grein reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla nr. 98/2000 getur skólameistari heimilað nemendum, sem ekki uppfylla inntökuskilyrði brautar að fullu að hefja nám á viðkomandi námsbraut ef hann telur líkur á því að þeir standist þær kröfur sem gerðar eru um námsárangur. Einnig kemur fram í 9. grein reglugerðarinnar að við mat á umsóknum ber skólameistara að taka mið af inntökuskilyrðum sem kveðið er á um í reglugerðinni og fylgja að öðru leyti almennum hlutlægum reglum þannig að samræmis og jafnræðis sé gætt milli umsækjenda sem uppfylla sambærileg skilyrði. Ákvörðun skólameistara um inntöku nemenda í skólann úr hópi þeirra sem ekki njóta forgangsréttar samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar ber að byggja á málefnalegum sjónarmiðum.
Það er því ákvörðun skólameistara viðkomandi framhaldsskóla að meta námið til inntöku í framhaldsskólann í samræmi við 7. og 9. grein reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla.
Á það skal bent að í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla er ákvæði um nemendur, sem hafa takmarkaða kunnáttu í íslensku. Átt er við nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku og nemendur sem hafa dvalið lengi erlendis. Fram kemur m.a. að hafi nemandi dvalið utan Norðurlanda þá geti hann sótt um að taka annað tungumál í staðinn fyrir Norðurlandamál.
Apríl 2001

