Framhaldsskólar
Áhyggjur af framtíð dönskukennslu á Íslandi - september 2001
Lýst var yfir áhyggjum af framtíð dönskukennslu á Íslandi vegna þeirra breytinga sem felast í reglugerð nr. 98/2000 um innritun nemenda í framhaldsskóla. Í því sambandi vill ráðuneytið taka fram eftirfarandi:
Við setningu nýrra aðalnámskráa fyrir grunn- og framhaldsskóla var lögð áhersla á að auka ábyrgð nemenda á námi sínu og var þetta m. a. gert með því að auk val nemenda í efstu bekkjum grunnskóla auk þess sem nemendur geta nú valið um hvaða samræmd próf þeir taka eða hvort þeir taka samræmd próf, allt eftir þeim markmiðum sem þeir stefna að. Það er því æskilegt samkvæmt nýrri námskrá að nemendur geri upp við sig þegar við lok grunnskóla hvert þeir vilji stefna með frekara námi og velji sér námsgreinar í samræmi við það.
Ráðuneytið lítur svo á að allar greinar sem skilgreindar eru í námskrám grunn- og framhaldsskóla séu mikilvægar og skipti miklu máli hvað varðar almenna menntun nemenda, sbr. markmiðsgreinar laga um þessi skólastig. Með námi í dönsku er t. d. stuðlað að því að efla tengsl við Norðurlönd og danska því fyrst og fremst kennd vegna samskipta og menningartengsla þessara landa. Sú staðreynd að í reglugerð nr. 98/2000 er gerð krafa um samræmt próf í dönsku aðeins á málabraut felur ekki í sér vanmat á greininni nema síður sé.
Þegar reynt er að meta gildi námsgreina á framhaldsskólastigi ber einnig að hafa í huga að markmið námsins eru ekki lengur bundin við almenn menntunarmarkmið heldur eru nemendur einnig að búa sig undir störf á afmörkuðum sviðum eða þeir eru að undirbúa sig fyrir nám í háskóla á tilteknum fræðasviðum. Val nemenda á brautum og námsgreinum mótast því af framtíðaráformum þeirra að því er varðar frekara nám og störf og gildi einstakra greina fyrir nemendur verður því um leið háð þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér.
Við setningu reglugerðar nr. 98/2000 um innritun nemenda í framhaldsskóla var ákveðið að gera kröfu um að nemendur hefðu fyrst og fremst lokið samræmdum prófum í þeim greinum sem ætla mætti að skiptu mestu máli fyrir framvindu náms á þeirri braut sem þeir veldu sér. Af þeim ástæðum sem að framan geinir er því gerð krafa um að nemendur sem ætla sér að hefja nám á málabraut framhaldsskóla hafi m. a. lokið samræmdu prófi í dönsku en hins vegar eru ekki hliðstæð málefnaleg rök fyrir því að gera þessa kröfu fyrir aðrar námsbrautir.
(September 2001)

