Framhaldsskólar
Áminning yfirmanns - desember 1997
Menntamálaráðuneytinu hefur borist stjórnsýslukæra [kennara] á hendur skólameistara [X-skóla] vegna skriflegrar áminningar sem skólameistari veitti viðkomandi skv. 21. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Kærandi krefst þess að áminningin verði felld úr gildi.
Kæra kæranda er borin fram með vísun til stjórnsýslulaga nr. 13/1987. Er í 26. gr. laganna að finna hina almennu heimild í íslenskum lögum til þess að "kæra stjórnvaldsákvörðun til æðra stjórnvalds til þess að fá hana fellda úr gildi eða henni breytt nema annað leiði af lögum eða venju", eins og segir í lagagreininni.
Framangreind lagagrein veitti m.a. starfsmönnum ríkisins heimild til þess að kæra stjórnvaldsákvarðanir til æðri stjórnvalda þar til lög nr. 70/1996 um starfsmenn ríkisins gengu í gildi hinn 19. júní 1996. Í lög nr. 70/1996 var sett sérregla, sem í aðalatriðum afnam heimild til þess að skjóta ákvörðunum stjórnvalda samkvæmt lögunum til æðri stjórnvalda. Í 49. gr. laga nr. 70/1996, sem um þetta efni fjallar, segir svo: "Ákvörðunum stjórnvalda samkvæmt lögum þessum verður ekki skotið til æðri stjórnvalda nema öðru vísi sé fyrir mælt í einstökum ákvæðum laganna".
Í greinargerð, sem fylgdi frumvarpi til hinna nýju laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, kom fram, að þessi aðalregla þótti sett til samræmis við þá ætlun laganna að auka sjálfstæði forstöðumanna einstakra stofnana. Í athugasemdum við 49. gr. frumvarpsins var ennfremur sérstaklega tekið fram, að eftir sem áður væri unnt að bera ákvarðanir samkvæmt lögunum undir umboðsmann Alþingis og dómstóla með venjulegum hætti.
Nokkrar undantekningar er að finna í lögum nr. 70/1996 frá þeirri aðalreglu 49. gr., að ákvörðunum stjórnvalda verði ekki skotið til æðri stjórnvalda. Áminning skv. 21. gr. laganna er ekki meðal þeirra undantekninga.
Það er niðurstaða ráðuneytisins, að lagaheimild bresti til þess að skjóta kæruefni máls þessa til úrskurðar þess. Getur ráðuneytið því ekki tekið kæruna til efnisúrskurðar. Samkvæmt því, sem hér hefur verið greint, er framangreindri kæru [kennara] vísað frá.
(Desember 1997)

