Sérkennsla og sérfræðiþjónusta
Salamancayfirlýsingin og reglugerð um sérkennslu
Salamancayfirlýsingin og reglugerð um sérkennslu
Ráðuneytinu hafa borist nokkrar fyrirspurnir um Salamancayfirlýsinguna og reglugerð um sérkennslu.
Salamancayfirlýsingin og rammaáætlun um aðgerðir vegna nemenda með sérþarfir var samþykkt á ráðstefnu sem haldin var af UNESCO og spænska menntamálaráðuneytinu 1994 í borginni Salamanca á Spáni. Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá 92 ríkjum, þ.á m. frá Íslandi, svo og fulltrúar frá 25 alþjóðasamtökum. Í áætluninni kemur fram einróma samþykki allra þátttakenda um framtíðarmarkmið og stefnu í kennslu nemenda með sérþarfir. Salamancaáætlunin er því viljayfirlýsing 92 ríkja og 25 alþjóðasamtaka. Ekki er um bindandi reglugerð að ræða fyrir einstök ríki. Menntamálaráðuneytið gaf út íslenska þýðingu og staðfærslu á Salamancaáætluninni árið 1995 og dreifði til fjölmargra aðila og yfirlýsingin er einnig aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins. Í formála kemur fram að ráðuneytið vænti þess að yfirlýsingin og rammaáætlunin um aðgerðir vegna nemenda með sérþarfir geti orðið Íslendingum að leiðarljósi.
Við síðustu gerð aðalnámskrár grunnskóla var Salamancaáætlunin höfð til hliðsjónar og meginstefna áætlunarinnar birtist í aðalnámskránni þar sem lögð er áhersla á skóla án aðgreiningar.
Spurt er hvort ráðuneytið hyggist gefa út vinnureglur varðandi það hvernig staðið skuli að málum við að taka á móti börnum með þroskafrávik í almenna grunnskóla og hvort reglugerðarsmíð sé í gangi varðandi sérkennslu.
Reglugerð um sérkennslu nr. 389/1996 var síðast endurskoðuð í kjölfar flutnings grunnskólans til sveitarfélaga. Litlar breytingar voru þá gerðar frá fyrri reglugerð aðrar en að laga hana að nýrri skipan skólamála. Eftir að ný aðalnámskrá grunnskóla tók gildi 1999 með þriggja ára aðlögunartíma hefur verið rætt um nauðsyn þess að endurskoða gildandi reglugerðir um grunnskóla, þ.m.t. reglugerð um sérkennslu, með það að markmiði að samræma betur reglugerð og aðalnámskrá. Engin formleg vinna hefur farið sérstaklega af stað við endurskoðun á reglugerð um sérkennslu og ekki hægt að segja til um það hvenær eða með hvaða hætti verður ráðist í það verk. Ekki hefur heldur verið um það rætt að ráðuneytið gæfi út vinnureglur um hvernig eigi að taka á móti börnum með þroskafrávik í almenna grunnskóla, en ráðuneytið tekur undir það að gagnlegt væri fyrir skóla að slíkar almennar vinnureglur væru fyrir hendi. Það er hins vegar spurning hvort ráðuneytið eigi að beita sér fyrir útgáfu slíkra reglna eða hvort það sé ekki fremur á verksviði sveitarfélaga og skóla.
Sjá einnig heimasíðu Evrópumiðstöðvar um þróun í sérkennslu. European Agency for Development in Special Needs Education,
www.european-agency.org
(Júlí 2001)

