Sérkennsla og sérfræðiþjónusta
Viðtöl starfsfólks sérfræðiþjónustu við grunnskólabörn án vitundar foreldra - nóvember 1997
Viðtöl starfsfólks sérfræðiþjónustu við grunnskólabörn án vitundar foreldra
Skólaskrifstofa [X] beindi eftirfarandi fyrirspurn til menntamálaráðherra.
Óskað var eftir áliti ráðuneytisins á spurningum um viðtöl grunnskólabarna við starfsmenn sérfræðiþjónustu skóla án vitundar foreldra.
Spurt er hvort það samrýmist lögum að grunnskólanemendur geti leitað eftir viðtölum hjá starfsfólki, sem sinnir sálfræðiþjónustu í grunnskólum, að eigin frumkvæði og án vitundar foreldra.
Nemendur í vanda eiga að geta leitað til hvaða starfsmanns grunnskóla sem er í fullum trúnaði og vissu um aðstoð. Starfsmönnum ber þá að finna vandamálunum réttan farveg til lausnar eftir eðli máls hverju sinni.
Í reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla nr. 386/1996 er sagt til um meðferð mála þegar aðrir en nemandinn hafa frumkvæði að afskiptum sérfræðiþjónustu skóla. Í 5. gr. segir að allar athuganir og rannsóknir sem varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki forráðamanna. Sams konar ákvæði er í 8. gr. reglugerðar um sérkennslu nr.389/1996. Í 4. gr. reglugerðar um sérfræðiþjónustu skóla segir að starfsmenn sérfræðiþjónustu skuli vinna forvarnarstarf í samvinnu við starfsmenn skóla m.a. með kennslufræðilegum og sálfræðilegum athugunum og greiningu á nemendum. Forráðamenn geta komið með ósk um slíka athugun. Starfsmenn skóla og heilsugæslu geta lagt fram ósk um athugun að fengnu samþykki forráðamanna. Samkvæmt áðurnefndri reglugerð er gert ráð fyrir samþykki forráðamanna áður en málum er vísað til meðferðar hjá sérfræðiþjónustu skóla.
(Nóvember 1997)

