Skólareglur - agi og brottrekstur
Kćrđ ákvörđun skólastjóra um brottvísun nemanda - mars 1997
Menntamálaráđuneytinu hefur borist erindi [móđur] ţar sem kćrđ er ákvörđun skólastjóra [X -skóla] ađ vísa [X -nemanda] úr skóla. Telur móđirin ađ skólastjóri hafi ekki stađiđ á lögmćtan hátt ađ brottrekstri nemandans og hafi hann ennfremur viđ međferđ valds síns ekki gćtt međalhófsreglu stjórnsýslulaganna eđa ţeirra leiđbeiningarskyldu sem á honum hvílir einkum varđandi réttindi barnsins til sérstaks stuđnings í námi. Ţá óskar hún ennfremur eftir úrskurđi ráđuneytisins um hvort ein kennslustund á dag, ţ.e.a.s fimm kennslustundir á viku, falli undir hugtak 4. mgr. 41. gr. grunnskólalaga um annađ úrrćđi sem tryggja beri nemanda sem vikiđ er úr skóla. Í ţriđja lagi óskar [móđirin] úskurđar ráđuneytisins um hvort heimilt sé ađ víkja nemanda úr skóla um stundarsakir lengur en eina viku án ţess ađ hann hljóti annađ kennsluúrrćđi.
Af ţessu tilefni telur ráđuneytiđ rétt ađ árétta ađ ákvörđun um brottvísun nemenda úr skóla telst stjórnsýsluákvörđun í skilningi stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og ber ţví viđ međferđ slíkra mála ađ gćta reglna stjórnsýslulaga. Ţá ber ennfremur ađ gćta sérstaklega ađ málsmeđferđarreglu 41. gr. grunnskólalaga viđ međferđ slíkra mála.
Međ vísan til 3. mgr. 41. gr. grunnskólalaga sem og 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga framsendist erindi [móđur] til skólanefndar [X-sveitarfélags] til úrlausnar.
(Mars 1997)

