Skólasókn
Vottorđ vegna ítrekađra veikinda - mars 2001
Vottorđ vegna ítrekađra veikinda.
Óskađ var eftir áliti ráđuneytisins á ţví hvort grunnskólum sé heimilt ađ krefja nemendur um vottorđ vegna ítrekađra veikinda.
Samkvćmt 1. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 er öllum börnum og unglingum á aldrinum 6 til 16 ára skylt ađ sćkja skóla en frá ţví má ţó veita undanţágu, sbr. 5., 7. og 8. gr. laganna. Skv. 8. gr. laganna getur forráđamađur skólaskylds barns sótt um tímabundna undanţágu ţess frá skólasókn og skólastjóra er heimilt ađ veita slíka undanţágu í samráđi viđ umsjónarkennara telji hann til ţess gildar ástćđur. Gildar ástćđur geta t.d. veriđ langvinn veikindi og í ţeim tilvikum ţarf ađ liggja fyrir mat lćknis.
Í íţróttalögum nr. 64/1998 er kveđiđ á um í 11. gr. ađ í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins skulu íţróttir kenndar og iđkađar svo sem nánar er kveđiđ á um í lögum, reglugerđum og námskrám sem um ţá skóla gilda. Í íţróttalögum er tekiđ fram ađ öll börn á landinu skuli lćra sund nema ţau séu talin ófćr til ţess ađ mati lćknis, ţ.e. hafi lćknisvottorđ.
Í reglugerđ um sérkennslu nr. 389/1996 eru í 15. gr. sérstök ákvćđi um sjúkrakennslu. Ţar segir: "Ţeir nemendur grunnskóla sem ađ mati lćknis verđa frá skólagöngu vegna slyss eđa veikinda lengur en 5 skóladaga skulu eiga rétt til sjúkrakennslu annađhvort á heimili sínu eđa á sjúkrastofnun. Skólastjóri sá er sveitarstjórn lögheimilissveitarfélags nemanda felur umsjón sjúkrakennslu í sveitarfélaginu, ákveđur í samráđi viđ lćkni ţann er nemandann stundar, hversu mikla kennslu nemandinn skal fá. Ţegar um er ađ rćđa nemanda sem haldinn er langvinnum sjúkdómi skal kennsla ađ jafnađi eigi hefjast síđar en 5 dögum frá ţví ađ veikindi hófust eđa frá skólabyrjun í sveitarfélaginu. Sjúkrakennari skal hafa samráđ viđ umsjónarkennara nemandans ţar sem ţađ á viđ en annars ţann skólastjóra sem hefur umsjón međ kennslunni".
Ráđuneytiđ lítur svo á ađ verđi nemendur grunnskóla frá skólagöngu vegna veikinda lengur en 5 skóladaga samfellt sé eđlilegt ađ skólinn krefji forráđamenn nemenda um lćknisvottorđ, enda sé ţađ skilyrđi vegna sjúkrakennslu. Einnig lítur ráđuneytiđ á ađ eđlilegt sé ađ skólar óski ávallt eftir formlegri stađfestingu forráđamanna ţegar um tímabundin veikindi skólaskylds barns er ađ rćđa.
(Mars 2001)

