Starfsfólk grunnskóla
Stjórnsýsluleg staða aðstoðarskólastjóra - nóvember 1999
Spurst var fyrir um stjórnsýslulega stöðu aðstoðarskólastjóra í grunnskólum.
Menntamálaráðuneytið vill benda á að í ljósi þess að rekstur grunnskólans og málefni starfsmanna hans er nú í höndum sveitarfélaga sé rétt að beina fyrirspurninni þangað.
Ráðuneytið vill þó benda á það sem fram kemur í 23. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995 og það sem um hana segir í greinargerðinni með frumvarpinu. Í 23. gr. laganna segir að sveitarstjórn skuli ráða aðstoðarskólastjóra að fenginni umsögn skólastjóra. Ennfremur segir að aðstoðarskólastjóri sé staðgengill skólastjóra. Í greinargerð með frumvarpinu, sem síðar varð að lögum, segir :
Nýjung er ákvæði um aðstoðarskólastjóra að því leyti að við ákvörðun um stjórnunarumfang er tekið tillit til annarra starfsmanna skólans en ekki kennara einna. Skal miða við 12 starfsmenn í fullu starfi. Með þessu er komið til móts við þá kröfu skólastjóra að meta stjórnunarstörf vegna skólaaksturs, gæslustarfa á heimavistum, mötuneytum og ýmissa annarra starfa en kennslu. Hér er gengið út frá þeirri forsendu að aðrir starfsmenn skóla, svo sem húsvörður og starfsmenn mötuneytis séu skilgreindir sem starfsmenn eins ákveðins skóla.
Með hliðsjón af þessu verður ekki annað séð, en að ofangreind athugasemd í greinargerð um aðstoðarskólastjóra árétti að um stjórnunarstarf sé að ræða, auk þess orðalags í lagatextanum sjálfum að um staðgengil skólastjóra sé að ræða, sem aftur er æðsti stjórnandi skólans.
Nóvember 1999

