Starfsfólk grunnskóla
Iđjuţjálfun grunnskólabarna - desember 1997
Skólaskrifstofa [X] beindi eftirfarandi fyrirspurn til menntamálaráđherra.
Óskađ var eftir áliti ráđuneytisins á spurningum um iđjuţjálfun grunnskólabarna.
Spurt er um skyldur sveitarfélaga til ađ sjá grunnskólabörnum fyrir iđjuţjálfun og hverjir eigi ađ bera kostnađinn af iđjuţjálfun.
Í lögum um grunnskóla nr. 66/1995 er hvergi vikiđ ađ skyldum til iđjuţjálfunar á vegum grunnskóla. Í reglugerđ um sérfrćđiţjónustu skóla nr. 386/1996 er öllum sveitarfélögum, sem standa ađ rekstri grunnskóla, skylt ađ sjá skólunum fyrir sérfrćđiţjónustu, bćđi almennri og greinabundinni kennsluráđgjöf, er taki til ţeirra námsgreina sem tilgreindar eru í 30. gr. grunnskólalaga og sálfrćđiţjónustu. Í reglugerđinni er ekki gert ráđ fyrir iđjuţjálfun grunnskólabarna. Í reglugerđ um sérkennslu nr. 389/1996 er ekki gert ráđ fyrir kostnađi vegna iđjuţjálfunar grunnskólabarna.
Í lögum um málefni fatlađra nr 59/1992 er vikiđ ađ iđjuţjálfun í XI. kafla um félagslega hćfingu og endurhćfingu og er í 26. gr. kveđiđ á um starfrćkslu sérstakra hćfingar- og endurhćfingarstöđva og dagvistarstofnana fyrir fatlađa sem veitt geti m.a. iđjuţjálfun. Samkvćmt 3. gr. laganna fer félagsmálaráđherra međ yfirstjórn málefna fatlađra samkvćmt lögum ţessum. Skal félagsmálaráđuneytiđ annast stefnumótun, gerđ heildaráćtlana og eftirlit međ framkvćmd laganna.
Iđjuţjálfun sem hluti af hćfingu eđa endurhćfingu getur einnig falliđ innan verksviđs heilbrigđisráđuneytisins samanber 19. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigđisţjónustu. Menntamálaráđuneytiđ vísar ţví á félagsmálaráđuneytiđ og heilbrigđisráđuneytiđ međ frekari svör viđ spurningum yđar um iđjuţjálfun grunnskólanemenda.
(desember 1997)

