Starfsleyfi
Starfsleyfi einkaskóla
Ráđuneytinu barst fyrirspurn um möguleika á ađ koma á laggirnar foreldrareknum grunnskóla og hvort ráđuneytiđ myndi veita slíkum skóla starfsleyfi og hvort sveitarfélagi sé skylt ađ taka ţátt í rekstri hans.
56. gr. grunnskólalaga heimilar ráđherra ađ gefa leyfi til ađ reka einkaskóla á grunnskólastigi sem kostađir eru af einstökum mönnum eđa stofnunum ef ţeir starfa skv. reglugerđ eđa skipulagsskrá sem ráđuneytiđ stađfestir. Formlegt erindi ţar sem óskađ er eftir heimild til reksturs slíks skóla ţarf ađ berast ráđuneytinu. Slíkir skólar hlíta sama eftirliti og reglum og ađrir grunnskólar.
Ráđuneytiđ hefur mótađ eftirfarandi reglur til leiđbeiningar ţeim sem óska eftir ađ fá löggildingu fyrir einkaskóla:
1. Umsókn ţarf ađ vera formleg í bréfi.
2. Reglugerđ eđa stofnskrá skólans skal fylgja í tvíriti undirrituđ af ţeim sem bera ábyrgđ á skólanum.
3. Reglugerđ/stofnskrá skal taka til eftirfarandi atriđa:
- Nafn og heimilisfang skólans.
- Hvađa ađili stendur ađ skólanum, hver er eigandi og ábyrgđarađili. Allir ábyrgđarmenn skólans skulu undirrita stofnskrá.
- Stjórnskipulag, stjórn og varastjórn, samsetning stjórnar, valdssviđ, seturéttur annarra.
- Hvernig fjármagna skal reksturinn og hver ber ábyrgđ á fjármálum skólans.
- Ađ skólinn starfi samkvćmt lögum um grunnskóla og öđrum lögum sem varđa grunnskólahald.
- Ađ fram komi hvernig fara skuli međ skuldir/eignir ef skólinn er lagđur niđur.
- Ađ skipulagsskránni megi ekki breyta nema međ leyfi menntamálaráđherra.
4. Umsćkjandi leggi fram eftirfarandi:
- Stađfestingu viđkomandi yfirvalda á hollustu og öryggi húsnćđis og ađstöđu skólans.
- Lýsingu á stefnu, starfsháttum og markmiđum, svo sem međ skólanámskrá.
5. Ráđuneytiđ leitar umsagnar viđkomandi sveitarstjórnar á umsókninni.
6. Ráđherra stađfestir skipulagsskrá međ undirritun tveggja stofnskráa. Annađ eintakiđ er sent eigendum, hitt er varđveitt í ráđuneytinu.
7. Ráđuneytiđ sér um ađ senda stađfesta skipulagsskrá til birtingar í Stjórnartíđindum.
Einkaskólar eiga ekki kröfu til styrks af almannafé sbr. 56. gr. grunnskólalaga. Ţađ er undir ákvörđun sveitarfélagsins komiđ hvort ţađ veitir fé til slíks skóla og ţeirri ákvörđun verđur ekki skotiđ til menntamálaráđuneytisins.
(Júlí 2001)

