Skólaakstur í dreifbýli
Óskað var eftir rökstuddu áliti menntamálaráðuneytisins á því hvort foreldrar í dreifbýli eigi rétt á því að fá börn sín heim að afloknum lögbundnum skóladegi með skólaakstri þeim að kostnaðarlausu eða að öðrum kosti að þeir þurfi ekki að greiða fyrir lengda skóladagvist sem þeir höfðu ekki beðið um, sem er skipulögð þar til börnin eru keyrð heim með skólabíl.
Lesa meira
Innheimta gjalda í foreldrafélögum grunnskóla
Spurt er hvort það standist lög að foreldrafélag við grunnskóla sendi gíróseðil heim til foreldra með einni upphæð, 500 kr. þannig að foreldrafélagið geti staðið að skemmtunum, t.d. um jól og páska.
Lesa meira

