Matsnefnd

Mat á námi og störfum með tilliti til starfa við grunnskóla og til framhaldsnáms - nóvember 1999


Spurt var um mat á námi og störfum með tilliti til starfa við grunnskóla og til framhaldsnáms hér á landi.

Einnig er spurt um matsnefnd á vegum menntamálaráðuneytisins.

Í 3. grein reglugerðar nr. 695/1998 um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara eru ákvæði um matsnefnd. Þar kemur m.a. fram að hlutverk matsnefndar grunnskóla er að meta umsóknir með hliðsjón af kröfum laga og reglugerða um menntun og starfsreynslu grunnskólakennara.

Matsnefndin er ráðgefandi og skilar rökstuddri umsögn til menntamálaráðherra.

Í 4. gr. reglugerðarinnar segir ennfremur:
Menntamálaráðherra skal staðfesta leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins ef viðkomandi leggur fram vottorð um viðurkennd kennsluréttindi í ríki innan svæðisins í samræmi við skilyrði tilskipuna nr. 89/48/EBE, sbr. lög nr. 83/1993, um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, með áorðnum breytingum.

Um skilyrði fyrir útgáfu leyfisbréfs segir í 2. gr. reglugerðarinnar:

Umsækjandi sem uppfyllir skilyrði 2. gr. laga nr. 86/1998 á rétt á að nota starfsheitið grunnskólakennari og starfa sem slíkur í grunnskólum hér á landi. Umsækjandi um leyfi til þess að nota starfsheitið
grunnskólakennari skal leggja fram, ásamt umsókn, skírteini um lokapróf, yfirlit yfir námsferil og auk þess lýsingu á einstökum námsáföngum sem hann hefur lokið sé þess óskað. Umsækjandi skal leggja fram próf- og námsgögn frá erlendum skólum ef um slík próf er að ræða og löggilta þýðingu á prófgögnum ef fram á það er farið. Heimilt er að meta kennslureynslu sem 15 eininga hluta af kennslufræði til kennsluréttinda enda hafi viðkomandi að lágmarki fimm ára kennslureynslu með góðum árangri að mati viðkomandi skólastjóra samkvæmt skriflegri umsögn hans.

Á það skal bent að hægt er að nálgast upplýsingar um lög og reglugerðir á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. til nánari glöggvunar.

Nóvember 1999