Nám og kennsla

Stađa tónmenntar í grunnskólum - apríl 2001


Óskađ var eftir upplýsingum um tónmennt í grunnskóla. Hér á eftir eru spurningar sem fram voru bornar og svör viđ ţeim:

1. Eiga börnin einhvern lagalegan rétt á tónmennt?

Tónmennt er ein af lögbundnum námsgreinum grunnskólans, skyldunámsgrein í 1.-8. bekk og valgrein í 9. og 10. bekk. Grunnskólanemendur eiga rétt á lögbundinni frćđslu í tónmennt samkvćmt ţví og eru markmiđ námsgreinarinnar útfćrđ í ađalnámskrá grunnskóla, hefti um listgreinar. Allar námskrár grunnskóla er ađ finna á heimasíđu menntamálaráđuneytis: www.menntamalaraduneyti.is

2. Hver er kostnađur foreldris í almennri tónmennt í grunnskólum í dag?

Frćđsla í tónmennt, svo og öđrum námsgreinum grunnskóla, er nemendum og foreldrum ađ kostnađarlausu, bćđi kennsla og námsgögn.

3. Annađ sem ráđuneytiđ vill koma á framfćri varđandi tónmennt viđ grunnskólann?

Međ hliđsjón af framansögđu er rétt ađ vekja athygli á skýrum greinarmun sem gera ţarf á ţessu tvennu:
Annars vegar tónmenntarfrćđslu grunnskólans, sem er skyldunámsgrein og valgrein samkvćmt lögum um grunnskóla og ađalnámskrá grunnskóla.

Hins vegar frćđslu á vegum tónlistarskóla, sem flestir eru reknir af sveitarfélögum. Ţar er um ađ rćđa valfrjálst viđbótarnám í ýmsum greinum, einkum í hljóđfćraleik og fyrir ţađ eru greidd skólagjöld. Tónlistarskólar starfa samkvćmt sérstökum lögum. Ný ađalnámskrá tónlistarskóla, útgefin af menntamálaráđuneytinu, tók gildi 1. júní 2000 og skal ađ fullu vera komin til framkvćmda eigi síđar en ađ ţremur árum liđnum frá gildistöku. Ţess eru dćmi ađ nemendur hafi fengiđ tónlistarnám viđ tónlistarskóla metiđ til valgreina í grunnskólum, hafi ţess veriđ óskađ af foreldrum.

Tveimur síđustu spurningunum er rétt ađ svara í einu lagi.

4. Hvenćr á skóladagatal ađ vera tilbúiđ?

5. Hvenćr á námsáćtlun ađ vera tilbúin?

Svör viđ ţessu er ađ finna í ađalnámskrá grunnskóla, almennum hluta, kafla um skólanámskrá á bls. 25-27. Niđurlagsorđ kaflans eru ţessi:

"Skylt er ađ leggja skólanámskrá fyrir skólanefnd og foreldraráđ til umsagnar ár hvert. Til ţess ađ umsagnarađilar geti nýtt umsagnarrétt sinn er augljóst ađ leggja verđur skólanámskrá fram til umsagnar svo tímanlega ađ unnt sé ađ taka tillit til athugasemda áđur en til framkvćmda kemur." Ţar af leiđir ađ skóladagatal og námsáćtlun hvers skóla ţarf ađ liggja fyrir ađ vori.

(Apríl 2001)