Nám og kennsla

Heimaskóli - kennsla í foreldrahúsum - maí 2000



Sótt var um heimild menntammálaráðuneytisins til þess að gera tilraun með heimaskóla fyrir þrjú þannig að menntun þeirra fari fram heima en ekki í skóla.

Frá og með gildistöku laga nr. 66/1995 um grunnskóla er allur rekstur almennra grunnskóla á ábyrgð og kostnað sveitarfélaga. Skólanefnd sem starfar á vegum viðkomandi sveitarfélags skal sjá um að öll skólaskyld börn í skólahverfinu njóti lögboðinnar fræðslu. Hún skal staðfesta áætlun um starfstíma nemenda ár hvert og fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í skólahverfinu. Sjá nánar 12. gr. grunnskólalaganna.

Samkvæmt 1. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 er kveðið á um að öllum börnum og unglingum á aldrinum 6 til 16 ára sé skylt að sækja skóla. Sú ábyrgð hvílir á forráðamönnum skólaskylds barns að það innritist í skóla þegar það kemst á skólaskyldualdur og sæki skóla, sbr. 6. gr. grunnskólalaga. Samkvæmt ákvæði 1. gr. grunnskólalaga er heimilt í vissum tilvikum að veita undanþágu frá framangreindri skyldu barna til þess að sækja skóla og eru undanþáguheimildir grunnskólalaga tæmandi taldar í í lagaákvæðinu, sjá 5., 7. og 8. gr. grunnskólalaga.

Í fyrsta lagi getur sveitarstjórn borið fram við menntamálaráðuneytið rökstudda beiðni um tímabundna undanþágu frá því að uppfylla að fullu ákvæði 1. og 26. gr. laga þessara um skólaskyldu og skólatíma, sbr. 5. gr. grunnskólalaga. Menntamálaráðuneytið úrskurðar hvort eða að hvað miklu leyti slík undanþága skuli veitt. Ef óskað er eftir að börnum verði veitt undanþága frá skólasókn er rétt að beina slíkum erindum til viðkomandi sveitarstjórnar. Börn sem búa í skólahverfum sem fengið hafa undanþágu skv. 5. gr. eru undanþegin því að sækja grunnskóla, að því leyti sem undanþágan kveður á um.

Í öðru lagi eru börn sem sækja viðurkennda einkaskóla, sbr. 56. gr. grunnskólalaga undanþegin því að sækja grunnskóla.

Í þriðja lagi er skólastjóra heimilt, telji hann til þess gildar ástæður að höfðu samráði við umsjónarkennara, að veita skólaskyldu barni tímabundna undanþágu frá skólasókn að beiðni forráðamanns. Í slíkum tilvikum skal forráðamaður þá sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á undanþágu stendur.

Fram kemur að viðkomandi hafi lokið B.Ed prófi frá Kennaraháskóla Íslands og hafi starfað við kennslu. Ef skólayfirvöld í viðkomandi sveitarfélagi telja það fýsilegan kost telur menntamálaráðuneytið ekkert því til fyrirstöðu að láta reyna á heimakennslu í tilraunaskyni á grundvelli nánari skilyrða enda njóti börnin tengsla við skóla og gangist undir samræmd próf svo sem kveðið er á um í grunnskólalögum.

Heimildir menntamálaráðuneytisins til þess að bregðast á þessu stigi málsins efnislega við erindinu eru takmarkaðar af framangreindum ákvæðum grunnskólalaga.

(Júní 2000)