Nemendaráđ
Starfsemi nemendaráđa í grunnskólum - júní 2002.
Óskađ var eftir frekari skýringum á 17. gr. grunnskólalaga um nemendaráđ í grunnskólum. Spurt er hvađa rétt skólinn sem uppeldisstofnun hafi til ađ skipta sér af nemendaráđi skólans, t.d. stćrđ ţess, vinnubrögđum, aldri fulltrúa í ráđinu og um ástundun nemendaráđsmanna í námi.
Samkvćmt 17. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 er nemendum grunnskóla heimilt ađ stofna nemendaráđ sem vinnur m.a. ađ félags-, hagsmuna-, og velferđarmálum ţeirra. Skólastjóri skal fela einum af kennurum skólans ađ ađstođa nemendaráđ. Nemendaráđ hvers skóla skal setja sér starfsreglur. Í greinargerđ međ frumvarpi til grunnskólalaga segir um 17. gr. "Fellt er niđur heimildarákvćđi um setu fulltrúa nemenda á fundum skólastjóra og kennararáđs og á kennarafundum. Rétt ţykir ađ hafa ţađ í valdi hvers skóla hvernig formlegri ađild nemenda ađ stjórn skólans er fyrir komiđ".
Í 14. gr. laganna segir m.a.: "Skólastjóri skal a.m.k. tvisvar á ári bođa til sameiginlegs fundar kennararáđs, foreldraráđs og nemendaráđs til ţess ađ veita upplýsingar um skólastarfiđ og fjalla um málefni ţessara ráđa".
Engin nánari ákvćđi eru í grunnskólalögum um nemendaráđ og menntamálaráđuneytiđ hefur ekki gefiđ út leiđbeiningar um störf og starfshćtti nemendaráđa. Ráđuneytiđ hefur ekki fylgst međ framkvćmd ţessa lagaákvćđis og hefur ekki upplýsingar um starfsemi nemendaráđa viđ grunnskóla á landsvísu.
Ráđuneytiđ telur ađ starfsemi nemendaráđa eigi ađ ákvarđast af nemendum hvers skóla og umgjörđ starfseminnar eigi ađ koma fram í starfsreglum sem nemendur setja sjálfir, innan ramma skólareglna skólans. Vel rekiđ og virkt nemendaráđ er mikilsverđur vettvangur fyrir nemendur fyrir félags-, hagsmuna- og velferđarmál ţeirra og getur stuđlađ ađ ţjálfun í lýđrćđislegum vinnubrögđum.
(júní 2002)

