Undanþágur fyrir leiðbeinendur
Undanþágunefndir grunn- og framhaldsskóla meta umsóknir skólastjóra um heimild til að lausráða starfsmann, sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið grunn- eða framhaldsskólakennari og til að starfa sem slíkur hér á landi við grunn- eða framhaldsskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla sbr. 18. og 19. grein laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
