Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Verkmenntaskólans á Akureyri, VMA.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Grunnskólans á Hólmavík. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Gerðaskóla. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá.
Lesa meiraÍ febrúar sl. fól ráðuneytið Capacent Gallup að gera könnun á framkvæmd og fyrirkomulagi íþróttakennslu í grunnskólum. Könnunin er gerð í samræmi við þriggja ára áætlun ráðuneytisins um ytra mat í leik-, grunn- og framhaldsskólum auk þess að vera hluti af eftirliti ráðuneytisins sbr. 4. gr. og 38. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.
Lesa meiraÁ vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins hefur verið unnið að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003.
Lesa meiraNefnd á vegum ráðherra hefur gert drög að frumvarpi til laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Þau voru birt á vef ráðuneytisins og fólki gafst kostur að kynna sér efni þeirra og beina athugasemdum og ábendingum til ráðuneytisins. Frumvarpið er enn í vinnslu og gert er ráð fyrir að ráðherra leggi það fyrir Alþingi í byrjun mars.
Frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnar á 140. löggjafarþingi 2011 – 2012,
sem mennta- og menningarmálaráðherra leggur fram.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn ESB hefur kynnt tillögur um breytingar á sjóða- og styrkjaáætlunum sínum, fyrir tímabilið 2012 – 2020. Um er að ræða þrjár stórar samstarfsáætlanir á sviði menningarmála og miðlunar (kvikmyndir o.fl.), mennta- og æskulýðsmála auk nýrrar rammaáætlunar um rannsóknir, vísindi og nýsköpun. Gert er ráð fyrir að ráðherraráðið og Evrópuþingið taki afstöðu til tillagnanna á árinu 2012. Íslendingar taka þátt í öllum þessum samstarfsáætlunum á grundvelli EES samningsins.
Lesa meiraOpinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli, Háskólinn á Hólum, hafa gert með sér samning um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum við skólana.
Lesa meiraÁ vegum ráðuneytisins hefur um nokkurt skeið verið í vinnslu frumvarp til nýrra laga um málefni bókasafna, sem ráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi haustið 2011. Fyrirliggjandi drög að frumvarpi byggja á umtalsverðri vinnu sem m.a. var unnin á árunum 2003 – 2008.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn ESB kynnti nýja áætlun ESB fyrir tímabilið 2014-2020 Erasmus for All: The EU Programme for Education, Training, Youth and Sport þann 23. nóvember 2011. Áætlunin sameinar sjö áætlanir í eina.
Lesa meiraKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, við hátíðlega athöfn í Gerðubergi 16. nóvember.
Lesa meiraSíðastliðin ár hefur skapast sú hefð að mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í einu ákveðnu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðherra tók þátt í tveimur ráðherrafundum á nýafstöðnu Norðurlandaráðsþingi, sem lauk í Kaupmannahöfn í dag
Lesa meiraVerkefnisstjórn aðgerða gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011.
Lesa meiraMánudaginn 31. október mun Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenda í fyrsta sinn vilyrði fyrir styrkjum til vinnustaðanáms. Um er að ræða styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir og starfsfólk úr ráðuneytinu heimsóttu Hörpu nýlega til að kynna sér Biophilia verkefnið.
Lesa meiraSamstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara á öllum skólastigum neðan háskólastigs hefur tekið til starfa.
Lesa meiraSvandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, bauð skáksveit Rimaskóla, ásamt foreldrum og systkinum til móttöku í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Tilefnið var glæsilegur sigur sveitarinnar á Norðurlandamóti barnaskólasveita 2011 sem haldið var í bænum Hadsten í Danmörku.
Gefin hefur verið út stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum. Við mótun stefnunnar var horft til framtíðar og tekið mið af því sem áunnist hefur á undanförnum árum.
Lesa meiraAðsókn að íslenska skálanum hefur farið fram úr björtustu vonum og alls staðar er borið mikið lofsorð á hann auk þes sem gríðarleg umfjöllun er um Ísland og íslenskar bókmenntir í þýskum fjölmiðlum.
Lesa meiraSvandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði í gær íslenska skálann á bókasýningunni í Frankfurt að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, forsetafrú Dorrit Moussaieff , Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands og fleiri gestum.
Lesa meiraSvandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra opnar íslenska skálann á bókasýningunni í Frankfurt, sem hefst þriðjudaginn 11. október og stendur til 16. október.
Lesa meiraÁ árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga.
Lesa meiraRáðstefna um gæðamál háskóla verður haldin þriðjudaginn 18. október en þar verður nýtt gæðakerfi fyrir íslenska háskóla formlega kynnt.
Lesa meiraFrá árinu 1992 hefur mennta-og menningarmálaráðuneytið staðið að baki rannsóknum um Ungt fólk, en frá árinu 1999 hefur rannsóknarmiðstöðin Rannsóknir og greining séð um framkvæmd þeirra alla, bæði meðal nemenda í grunn-og framhaldsskólum landsins.
Lesa meiraÚt er komið ritið Stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum.
Stefna ríkisins í íþróttamálum kemur fram m.a. í íþróttalögum, framlögum á fjárlögum
til íþróttamála og áherslum mennta- og menningarmálaráðherra hverju sinni. Stefna í
íþróttamálum er sameiginleg stefnumótun þeirra aðila sem bera ábyrgð á málaflokknum
sem eru ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin.
Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Boðið verður upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna, sjá nánar á www.visindavaka.is
Lesa meiraHelstu atriði:
Menntunarstig Íslendinga hefur aukist á undanförnum áratugum.
Lægra hlutfall lýkur námi eftir grunnskóla á Íslandi en á Norðurlöndum.
Brottfall úr framhaldsskólum er yfir meðaltali OECD.
Ísland í ellefta sæti innan OECD yfir útgjöld á hvern nemanda á öllum skólastigum.
Samband íslenskra sveitarfélaga, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga gerðu haustið 2009 með sér samstarfssamning um ráðningu verkefnisstjóra til tveggja ára til að vinna að innleiðingu nýrra laga um leik- og grunnskóla.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðuneytið hefur látið kanna málumhverfi og lestrarnám barna í tíu leikskólum. Valdir voru tíu leikskólar, starf þeirra skoðað og verkefni þeirra sett í fræðilegt samhengi. Könnun þessi er í samræmi við þriggja ára áætlun mennta- og menningarmálaráðuneytisins um ytra mat í leik-, grunn- og framhaldsskólum sem gildir frá 2010 til 2012 og samkvæmt 20. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
Lesa meiraHelstu atriði:
Átakið hefur gengið samkvæmt áætlun.
Yfir þúsund atvinnuleitendur hefja nám í skólum landsins í haust.
Framhaldsskólanemendum fjölgar um rúmlega 1.500 á milli ára.
Lesa meiraÁ komandi skólaári munu fimm framhaldsskólar styðjast nær eingöngu við frjálsan hugbúnað í starfi sínu.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á leikskólanum Hlíð í Mosfellsbæ. Úttektin er gerð á grundvelli 20. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og samkvæmt þriggja ára áætlun ráðuneytisins um úttektir á leikskólastigi.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Sunnulækjarskóla á Selfossi. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Úttektin er gerð á grundvelli 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.
Lesa meiraMiðvikudaginn 22. júní undirritaði Mennta- og menningarmálaráðherra Svandís Svavarsdóttir samninga um starfsemi og þjónustu Þekkingarnets Þingeyinga og Þekkingarnets Austurlands í Vogafjósi, Mývatnssveit, að viðstöddum fulltrúum þekkingarnetanna og gestum.
Lesa meiraFram að 1. júlí geta þeir einir sótt um leyfisbréf sem hófu nám haustið 2008 eða fyrr, sbr. 23. grein laganna og hafa lokið því fyrir fyrrgreinda dagssetningu.
Lesa meiraÁ ráðstefnunni vorur fluttir fjölmargir fyrirlestrar um viðfangsefnið, starfað var í vinnuhópum og rúmum tíma ætlað til almennra umræðna og fyrirspurna.Hér neðar má nálgast alla fyrirlestra ráðstefnunnar.
Lesa meiraÚt er komin skýrslan Ungt fólk 2010, framhaldsskólanemar. Rannsóknirnar Ungt fólk eru rannsóknir á högum, líðan og aðstæðum ungs fólks sem gerðar hafa verið reglubundið frá árinu 1992 í mismunandi aldurshópum ungmenna. Í þessari skýrslu er athyglinni beint að samanburði við rannsóknirnar frá árunum 2004 og 2007, en líta má á rannsóknina Ungt fólk 2010 sem beint framhald þeirra.
Lesa meiraMeð erindisbréfi dagsettu 8. desember 2010 var Capacent falið að gera úttekt á tilteknum þáttum í meistaranámi húsasmiða við Tækniskólann – skóla atvinnulífsins. Í eftirfarandi greinargerð, sem byggð er á rýni og greiningu gagna, viðtölum við helstu hagsmunaðila; stjórnendur, kennara, bæði núverandi og fyrrverandi nemendur, er að finna niðurstöður úttektaraðila.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu stjórnar, að veita styrki til 34 verkefna að upphæð rúmlega 44. millj. kr.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á leikskólanum Múlaborg. Úttektin er gerð á grundvelli 20. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og samkvæmt þriggja ára áætlun ráðuneytisins um úttektir á leikskólastigi.
Lesa meiraMennta og menningarmálaráðuneytið hefur birt drög að reglugerð um framhaldsfræðslu til umsagnar.
Lesa meiraÍ þessari námskrá má lesa um þann ramma og aðbúnað fyrir nám og kennslu sem mótast hefur í anda gildandi laga, reglugerða og alþjóðasamninga. Innan rammans hafa verið þróaðir sex grunnþættir sem mynda kjarna menntastefnunnar. Þeir varða starfshætti, inntak og umhverfi náms á öllum skólastigum og skapa mikilvæga samfellu í íslensku skólakerfi. Þessir grunnþættir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Lesa meiraTillaga mennta- og menningarmálaráðherra um hækkun á grunnframfærslu Lánasjóðs Íslenskra námsmanna (LÍN) var samþykkt á fundi ríkisstjórnar Íslands í dag.
Lesa meiraNorræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa styrki til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2011.
Lesa meiraNám er vinnandi vegur byggir á tillögum frá samráðshóp ráðuneyta, allra þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna sem forsætisráðherra skipaði. Í heild verða framlög til menntamála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár.
Lesa meiraSkýrsla um kortlagningu hagrænna áhrifa skapandi greina verður kynnt á málstofu í Háskóla Íslands þriðjudaginn 3. maí kl. 12:00. Höfundar skýrslunnar eru Margrét Sigrún Sigurðardóttir lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tómas Young rannsakandi.
Lesa meiraVelferðaráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Í boði eru 6 sumarstörf hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
2008-2009 var ráðist í áhrifamatsrannsókn til að afla alhliða gagna um umfang og gæði list- og menningarfræðslu á Íslandi. Rannsóknin tengist alþjóðlegri úttekt á listfræðslu sem gerð var árið 2006 á vegum UNESCO og samsvarar ítarlegum rannsóknum er síðar voru gerðar á landsvísu í Danmörku, flæmskumælandi hluta Belgíu og Hollandi.
Lesa meiraMenningarsamningar, samningar um menningarmál og menningartengda ferðaþjónstu, til þriggja ára á milli ríkisins og sambanda sveitarfélaga um allt land voru undirritaðir í dag.
Lesa meiraAðstæður til rannsókna á Íslandi batna til muna á næstunni þegar íslenskir vísindamenn fá aðgang að norrænu ofurtölvuveri sem starfrækt verður hér á landi.
Lesa meiraÍslensk stjórnvöld hafa gert ESA grein fyrir vinnu sem stendur yfir til að bregðast við ákvörðun ESA um svonefndar um viðeigandi ráðstafanir í fjárhags- og lagaumhverfi RÚV og óskað eftir fresti til loka apríl nk. til að ljúka henni.
Lesa meiraEfnt er til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og nýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni; „Með gæði og ávinning að leiðarljósi".
Þriðji fundurinn þessari fundaröð verður haldinn miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17
Skýrsla samstarfsráðherra, Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra, um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2010 er komin út.
Lesa meiraVeittar verða 80 milljónir króna í styrki til fjölbreyttra verkefna með það að markmiði að efla og bæta nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur fjölmiðla til að taka þátt í verkefni um leiðtogaþjálfun meðal starfsfólks með það að markmiði að hvetja konur til að sækja um yfirmannastöður á fjölmiðlum og efla umræðu um jafnrétti kynja.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.
Lesa meiraÞann 25. febrúar mun iðnaðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti í félagi við Hönnunarmiðstöð Íslands ýta úr vör verkefninu mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland.
Lesa meiraMennta- og menntamálaráðuneytið stendur fyrir Frjálsa deginum í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Frjálsi dagurinn er dagur helgaður notkun og innleiðingu frjáls og opins hugbúnaðar í framhaldsskólum og háskólum á Íslandi.
Lesa meiraTillaga mennta- og menningarmálaráðherra um 10 m.kr. aukafjárveitingu vegna Nýsköpunarsjóðs námsmanna var samþykkt á fundi ríkistjórnar Íslands í gær.
Lesa meiraTillaga starfshóps um stefnumörkun um fornleifarannsóknir og miðlun fornleifa í miðbæ Reykjavíkur liggur nú fyrir.
Lesa meiraHeimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi.
Lesa meiraFimmtudaginn 9. desember kl. 11 verður ný heimasíða um heimsminjasamning UNESCO opnuð í mennta- og menningarmálaráðuneytinu af Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
Lesa meiraÍslenskir nemendur bæta stöðu sína í lesskilningi samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA rannsóknar á lesskilningi og læsi á stærðfræði og náttúrufræði á meðal 15 ára nemenda.
Lesa meiraTölulegar niðurstöður rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina á Íslandi sem nú liggja fyrir leiða í ljós að skapandi greinar eru einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar.
Lesa meiraSíðastliðið vor hófst vinna við rannsókn á hagrænum áhrifum skapandi greina á Íslandi á heildstæðan hátt. Þann 1. desember verða tölulegar niðurstöður rannsóknarinnar kynntar og er óhætt að segja að þær munu koma mörgum á óvart.
Lesa meiraSamstarfsyfirlýsing um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild var undirrituð 24. nóvember.
Lesa meiraUmsóknarfrestur sveitarfélaga um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með athyglisbrest rennur út 25. nóvember.
Mennta- og menningarmálaðherra og borgarstjóri skrifuðu í dag undir yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf ríkis og borgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík til ársins 2014. Samkomulagið tryggir að leyst verður úr húsnæðisvanda þriggja skóla á tímabilinu 2011 til 2014.
Lesa meiraDagurinn er sameiginlegt verkefni allra norrænu menntamálaráðherranna og felst meðal annars í því að efla kennslu um loftslagsmál á Norðurlöndum og jafnframt að auka og efla samstarf kennara og nemenda á Norðurlöndum.
Lesa meiraEitt af helstu verkefnum Íslands á formennskuári í Norrænu ráðherranefndinni 2009 var framkvæmd samanburðarrannsóknar á högum, líðan og lífsstíl meðal norrænna ungmenna, 16-19 ára. Rannsóknin var gerð á öllum Norðurlöndunum, þ.m.t. Færeyjum Grænlandi og Álandseyjum.
Lesa meiraEitt af helstu verkefnum Íslands á formennskuári í Norrænu ráðherranefndinni 2009 var framkvæmd samanburðarrannsóknar á högum, líðan og lífsstíl meðal norrænna ungmenna, 16-19 ára. Rannsóknin var gerð á öllum Norðurlöndunum, þ.m.t. Færeyjum Grænlandi og Álandseyjum.
Lesa meiraAuglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest.
Í eftirfarandi áliti er tekin afstaða til álitaefna er varða lagaumgjörð og útfærslu á námi í trúarbragðafræði (Kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði). Einnig er fjallað um samskipti skóla og kirkju og tengd álitaefni.
Lesa meiraNiðurstöður úttektar á starfsemi Menntaskólans Hraðbraut. Markmið úttektarinnar var að
leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá
og veita almennar upplýsingar um starfsemi skólans.
Ritið „Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“ er komið út á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og Æskulýðsráðs. Leitað var til dr. Ragnhildar Helgadóttur, prófessors við Háskólann í Reykjavík, um að vinna álitsgerð um ábyrgð í félags- og tómstundarstarfi. Skoðaði hún hvernig háttað væri ábyrgð stjórnenda, umsjónarmanna, starfsmanna, kennara, leiðbeinenda, sjálfboðaliða, launaðra starfsmanna og annarra sem starfa með börnum og ungmennum í skipulögðu félags- og tómstundarstarfi
Lesa meiraUndirritaður hefur verið nýr samningur um heilsueflingu og forvarnir (HOFF) í framhaldsskólum milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar, heilbrigðisráðuneytisins, samtaka framhaldsskólanemenda, Félags íslenskra framhaldsskóla og Ráðgjafanefndar um æskulýðsrannsóknir.
Lesa meiraRíkisendurskoðun hefur, að beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytis, lokið úttekt á framkvæmd þjónustusamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við Menntaskólann Hraðbraut og birt skýrslu með niðurstöðum hennar.
Lesa meiraÍ skýrslu þessari greinir frá niðurstöðum könnunar á innleiðingu og framkvæmd laga nr. 90/2008
um leikskóla sem fór fram á tímabilinu 12. maí til 9. júní 2010.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfi leikskólans Iðavallar á Akureyri. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi leikskólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá leikskóla.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfi leikskólans Sólborgar í Reykjavík. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi leikskólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá leikskóla.
Lesa meiraKatrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun, þriðjudaginn 7. september
Lesa meiraMarkmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar um hvernig mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.
Lesa meiraÍ þessari skýrslu er gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Menntaskólans á Egilsstöðum. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá og veita almennt upplýsingar um starfsemi skólans. Úttektin er gerð á grundvelli 42. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.
Lesa meiraStarfshópur mennta- og menningarmálaráðherra um þekkingarsetur á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu. Skýrslan tekur til 189 setra um land allt og sýnir að þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni er margbrotin og einkennist af smáum en fjölbreyttum einingum.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðuneyti fer með málefni lista og almennra menningarmála. Stuðningi ríkisins við listir og menningarmál er annars vegar ætlað að jafna aðstöðu og auðvelda landsmönnum að njóta lista og menningar og hins vegar að tryggja eðlilegan starfsgrundvöll listamanna. Starfsemi ríkisins á sviði lista beinist einkum að atvinnulistamönnum og listastofnunum.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðuneyti fer með málefni lista og almennra menningarmála. Stuðningi ríkisins við listir og menningarmál er annars vegar ætlað að jafna aðstöðu og auðvelda landsmönnum að njóta lista og menningar og hins vegar að tryggja eðlilegan starfsgrundvöll listamanna. Starfsemi ríkisins á sviði lista beinist einkum að atvinnulistamönnum og listastofnunum.
Lesa meiraDrög að greinargerð um menntaþing sem haldið var 5. mars sl. er komin út. Öllum þátttakendum verður gert kleift að senda inn athugasemdir í síðasta lagi fyrir 20. ágúst nk.
Lesa meiraStarfshópur um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum hefur gefið út skýrslu með 30 tillögum að samhæfðum aðgerðum gegn einelti. Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að styðja sérstaklega við aðgerðirnar með því að veita 9 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu.
Lesa meiraSamtals voru 128 umsóknir til Sprotasjóðs að þessu sinni og heildarupphæðin sem sótt var um til sjóðsins var rúmlega 252 millj.kr. Stjórn sjóðsins gerði tillögur til menntamálaráðherra og ráðherra ákvað að tillögu stjórnar, að veita styrki til 47 verkefna að upphæð 44.780.000 millj. kr.
Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að hver grunnskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs. Matið á að tengjast skólanámskrá og skulu upplýsingar um framkvæmd og umbætur birtar opinberlega.
Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum úttekta sem fram fóru í öllum grunnskólum landsins á árunum 2007 til 2009. Jafnframt er í skýrslunni samanburður á heildarniðurstöðum frá 2001-2003 og 2007-2009
Lesa meiraKönnunin var gerð í árslok 2009 af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Menningarvogin er yfirgripsmesta könnun sinnar tegundar sem gerð hefur verið hér á landi þar sem almenningur spurður út í aðsókn að menningarviðburðum og þátttöku í menningarstarfsemi og viðhorf til menningar í landinu.
Lesa meiraÍ meðfylgjandi skjali er teknar saman helstu niðurstöður starfshóps um Ríkisútvarpið ohf. og tillögur um úrbætur í ljósi þeirrar reynslu sem komin er á opinbera hlutafélagaformið og vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru á fjölmiðlamarkaði.
Lesa meiraIn 2008-09 an impact evaluative research was undertaken in Iceland to gather comprehensive data about the extent and quality of arts and cultural education in Iceland. The evaluation focused on the following questions: What is being done in arts education and how is it being done? What is the quality of arts education in Iceland? What are the possibilities and challenges currently and into the future?
Lesa meiraHér er um að ræða handbók um mannréttindafræðslu sem er ætluð þeim sem starfa í skólum eða með börnum og unglingum á vettvangi félags-, æskulýðs- og tómstundastarfs. Bókin nýtist bæði fagfólki, forystufólki í félagsstarfi og sjálfboðaliðum.
Íslendingar eignuðust opinbera málstefnu í fyrsta sinn hinn 12. mars 2009 en þá samþykkti Alþingi tillögur Íslenskrar málnefndar að íslenskri málstefnu sem opinbera stefnu í málefnum íslenskrar tungu. Samþykkt Alþingis markaði þannig tímamót í sögu í tungunnar.
Lesa meiraNámsgagnasjóður hefur það hlutverk að leggja grunnskólum til viðbótarfé til námsgagnakaupa í því augnamiði að tryggja val þeirra um námsgögn. Með tilkomu sjóðsins hafa skólastjórnendur nú aukið svigrúm til námsgagnakaupa til viðbótar við úrval Námsgagnastofnunar.