Áhugavert efni

Tillögur um nýjar samstarfsáætlanir ESB á sviði menningar- og menntamála, rannsókna og nýsköpunar


1. Horizon 2020

Tillögur um nýja rammaáætlun fyrir rannsóknir og nýsköpun 2014-2020, sem nefnist á ensku  Horizon 2020 –Framework Programme for Research and Innovation in the European Union“. Markmið Horizon 2020 er að auka samkeppnishæfni Evrópu og skapa störf og stuðla að því að fleiri góðar hugmyndir komist á markað.

Horizon 2020 endurspeglar grundvallarmarkmið Evrópu 2020 áætlunar ESB um að styðja sjálfbæran hagvöxt í Evrópu. Áætlunin verður máttarstólpi Nýsköpunarsambandsins (e. Innovation Union) sem er eitt af sjö flaggskipum ESB.  Nýja áætlunin sameinar undir einum hatti 7. rannsóknaáætlun ESB (7RÁ), nýsköpunarhluta samkeppnisáætlunar ESB (CIP) auk þess að fjármagna Evrópsku nýsköpunar- og tæknistofnunina (EIT).

2. Erasmus fyrir alla

Tillögur um nýja samstarfsáætlun ESB fyrir menntun, þjálfun, æskulýðsmál og íþróttir fyrir tímabilið 2014-2020, sem nefnist á ensku ,,Erasmus for All: The EU Programme for Education, Training, Youth and Sport”. Áætlunin sameinar sjö áætlanir í eina. Þær eru: menntáætlunin (e. Lifelong Learning Programme), æskulýðsáætlunin (e. Youth in Action) og alþjóðaáætlanirnar fimm (e. Erasmus Mundus, Tempus, Alfa, Edulink og Bilateral cooperation programme with industrialised countries). Að auki verða íþróttamál í nýju áætluninni, en áður var rekin áætlun til reynslu í því efni.

3. Skapandi Evrópa

Tillögur um nýja samstarfsáætlun ESB fyrir menningarmál og miðlun (hljóð- og myndræna miðlun) fyrir tímabilið 2014-2020 ,sem á ensku hefur hlotið nafnið ,,Creative Europe – A new framework programme for the cultural and creative sectors 2014-2020”. Áætlunin sameinar þrjár áætlanir í eina; menningaráætlunina, Media 2007 áætlunina fyrir hljóð- og myndræna miðlunog alþjóðlega hluta hennar (MEDIA Mundus).

Skapandi Evrópa endurspeglar grundvallarþætti Evrópu 2020 áætlunar ESB og er m.a. ætlað að auka fjárfestingar í menningu og skapandi greinum sem mun leiða til fjölgunar starfa, aukins hagvaxtar og félagslegs jafnaðar.

 




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica