Mennta- og menningarmálaráðuneyti

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Allar auglýsingar

Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn 2008

4.10.2007

Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2008 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.
Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 20.700 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 19. nóvember 2007.

Det Arnamagnæanske Stipendium.

Det Arnamagnæanske Legat, sem hefur það verkefni að veita íslenskum ríkisborgurum styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í Kaupmannahöfn, auglýsir hér með styrk fyrir árið 2008 lausan til umsóknar.
Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri þeirra.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur.

Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 19. nóvember 2007.

Umsókn um báða styrkina.

Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að tvær umsóknir séu skrifaðar, sín um hvorn styrkinn.



Senda grein

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

www.menntamalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Lög og reglugerðir
  • Útgáfur
  • Stofnanir

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

Verkefni

  • Menningarmál
  • Menntamál
  • Vísinda- og háskólamál
  • Jafnréttismál
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Nefndir
  • Fjölmiðlamál
  • Málþing og ráðstefnur
  • Sjóðir og eyðublöð
  • Auglýsingar
    • Styrkjatorg
  • Starfsleyfi
  • Erlent samstarf
  • Mat og úttektir
  • Úrskurðir og álit

www.menntamalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Aðgengisstefna
    • Afgreiðsla
    • Fjármál
    • Fyrirspurnir
    • Laus störf
    • Málþing og ráðstefnur
    • Skipulag
    • Skjaldarmerki
    • Starfsfólk

  • Ráðherra
    • Ræður og greinar ráðherra
    • Þingstörf
    • Fyrirspurnir á AlþingiViðburðadagatal
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Menningarmál
    • MenntamálVísinda- og háskólamálÍþrótta- og æskulýðsmál
    • JafnréttismálFjölmiðlamál
    • NefndirMálþing og ráðstefnur  AuglýsingarSjóðir og eyðublöð
    • StarfsleyfiÚrskurðir og álit
    • Erlent samstarf

  • Útgáfur
    • Fréttir
    • Útgáfur DreifibréfMat og úttektir
    • Námskrár
    • Réttarheimildir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði mennta- og menningarmála-ráðuneytis
  • Stofnanir
    • Stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið

Samskipti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík Sjá kort
Sími 545 9500 - Bréfasími 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: postur@mrn.is - Fyrirspurnir - Fyrirvari - Aðgengisstefna

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska
  • Norska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Aðrir vefir

  • island.is

Þetta vefsvæði byggir á Eplica