Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróunarsjóður leikskóla 2008

Umsóknir skulu hafa borist Símenntun Rannsóknum Ráðgjöf - SRR fyrir kl.16:00 mánudaginn 3. mars 2008

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir árið 2008. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi. Um styrk geta sótt leikskólastjórar, leikskólakennarahópar eða einstakir leikskólakennarar. Aðrir geta sótt um styrk með samþykki leikskólastjóra og rekstraraðila. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin.

Við úthlutun njóta verkefni á neðangreindum sviðum forgangs að öðru jöfnu:

A. Hvernig læra leikskólabörn?
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni sem fela í sér skráningu á námsferli leikskólabarna. Óskað er eftir verkefnum sem hafa það að markmiði að leita eftir fjölbreyttum aðferðum til að skoða hvernig barn lærir og byggir upp þekkingu í gegnum leik og samskipti við börn og fullorðna. Einnig hvernig leikskólakennari getur ýtt undir og stutt við námsferli barna með því að skrá hugmyndir þeirra og tilgátur. Tilgangur með slíkum aðferðum væri að gera nám barna sýnilegt og stuðla að því að börn verði virkir þátttakendur í skipulagi og mati á eigin námi.

B. Barnamenning - leikir og listir leikskólabarna
Leitað er eftir verkefnum sem hafa það að markmiði að stuðla að skapandi starfi sem byggir á sköpunargleði og hugmyndaflugi leikskólabarna. Sérstaklega er óskað eftir umsóknum um þróunarverkefni sem ýta undir sjálfstæða leik- og listsköpun leikskólabarna með því að veita þeim fjölbreytileg tækifæri til að tjá sig í leik og efnivið sem býður upp á skapandi lausnir.

C. Önnur verkefni
Heimilt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna þótt ofangreind svið njóti forgangs.

Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf - SRR í Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu með sjóðnum og veitir nánari upplýsingar, rannsokn.khi.is/upplysingavefur/, netfang [email protected]. Reglur um sjóðinn og ýmsar aðrar upplýsingar er einnig að finna á vef menntamálaráðuneytis menntamalaraduneyti.is

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi. Rafræn umsóknareyðublöð og upplýsingar um fylgigögn eru aðgengileg á vef Símenntunar Rannsókna Ráðgjafar SRR, rannsokn.khi.is/upplysingavefur/

Umsóknir skulu hafa borist til Símenntun Rannsóknum Ráðgjöf - SRR fyrir kl.16:00 mánudaginn 3. mars 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum