Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla

Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi.

Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að greiða uppihaldskostnað sem nemur um það bil 45.000 norskum krónum á ári auk ferðakostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: http://www.uwc.org.

Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2009-2010. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16 - 19 ára.

Umsóknir berist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 24. apríl næstkomandi. Skóladeild ráðuneytisins veitir nánari upplýsingar í síma 545 9500. Umsóknareyðublöð eru á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum