Allar auglýsingar

Málþing - Ungt fólk 2009

22.10.2009


fimmtudaginn 22. október 2009 kl. 13:15 til 16:00

Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga Háskólann í Reykjavík og Rannsóknir og greiningu, boða til málþings um niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni Ungt fólk 2009 grunnskólar. Kynntar verða niðurstöður er varða menntun, menningu, tómstundaiðkun og framtíðarsýn nemenda á mið- og unglingastigi í grunnskólum landsins.

Málþingið verður haldið í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík og hefst kl. 13:15. Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki eigi síðar en kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffi.

    

Dagskrá
  •  Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið.
  •  Lára Björnsdóttir, félagsráðgjafi og formaður velferðarvaktarinnar: Velferðarvaktin - félagsvísar og rannsóknir.
  •  Ungt fólk 2009 Kynning á rannsóknarniðurstöðum: Jón Sigfússon, Álfgeir Logi Kristjánsson og Margrét Lilja Guðmundsdóttir: Miðstig 5., 6. og 7. bekkur, unglingastig 8. og 9. bekkur
  • Þórólfur Þórlindsson, prófessor: Velferð Íslenskra ungmenna: Nýting rannsókna.

 


Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðið fyrir reglubundnum æskulýðsrannsóknum síðan árið 1992 undir heitinu Ungt fólk. Háskólinn í Reykjavík og Rannsóknir og greining eru samstarfsaðilar ráðuneytisins að þessum rannsóknum. Þátttakendum gefst tækifæri til að bera fram spurningar um niðurstöður úr rannsókninni að kynningu lokinni.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica