Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) auglýsir verkefnastyrki
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna auglýsir til umsóknar styrki til verkefna sem tengjast málefnum stofnunarinnar fyrir árin 2010-2011. Styrkirnir eru fyrst og fremst veittir verkefnum sem tengjast meginverkefnum UNESCO, sem eru jafnrétti kynjanna og málefni Afríku og munu verkefni sem lúta að æskulýðsmálum, málefnum vanþróaðra ríkja, hamfara- og stríðsátakasvæðum svo og málefnum eyríkja njóta forgangs.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2010.
Umsóknareyðublöð má nálgast hjá ritara íslensku UNESCO-nefndarinnar:
Íslenska UNESCO-nefndin
Einar Hreinsson
Menntamálaráðuneytinu
Sölvhólsgötu 4
150 Reykjavík
- s. 5459500
