Mennta- og menningarmálaráðuneyti

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Allar auglýsingar
tónlist

Styrkir úr tónlistarsjóði


Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004 sbr. og reglur nr. 125/2005, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júní til ársloka 2010. Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2010 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2011 .

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist mennta- og menningarmálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan tíu vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti eða á vef þess: /afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menningarmal/nr/2956

Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 17 . maí 2010.

Umsóknir skal senda á póstfangið:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
tónlistarsjóður,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.



Senda grein

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

www.menntamalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Lög og reglugerðir
  • Útgáfur
  • Stofnanir

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

Verkefni

  • Menningarmál
  • Menntamál
  • Vísinda- og háskólamál
  • Jafnréttismál
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Nefndir
  • Fjölmiðlamál
  • Málþing og ráðstefnur
  • Sjóðir og eyðublöð
  • Auglýsingar
    • Styrkjatorg
  • Starfsleyfi
  • Erlent samstarf
  • Mat og úttektir
  • Úrskurðir og álit

www.menntamalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Aðgengisstefna
    • Afgreiðsla
    • Fjármál
    • Fyrirspurnir
    • Laus störf
    • Málþing og ráðstefnur
    • Skipulag
    • Skjaldarmerki
    • Starfsfólk

  • Ráðherra
    • Ræður og greinar ráðherra
    • Þingstörf
    • Fyrirspurnir á AlþingiViðburðadagatal
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Menningarmál
    • MenntamálVísinda- og háskólamálÍþrótta- og æskulýðsmál
    • JafnréttismálFjölmiðlamál
    • NefndirMálþing og ráðstefnur  AuglýsingarSjóðir og eyðublöð
    • StarfsleyfiÚrskurðir og álit
    • Erlent samstarf

  • Útgáfur
    • Fréttir
    • Útgáfur DreifibréfMat og úttektir
    • Námskrár
    • Réttarheimildir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði mennta- og menningarmála-ráðuneytis
  • Stofnanir
    • Stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið

Samskipti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík Sjá kort
Sími 545 9500 - Bréfasími 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: postur@mrn.is - Fyrirspurnir - Fyrirvari - Aðgengisstefna

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska
  • Norska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Aðrir vefir

  • island.is

Þetta vefsvæði byggir á Eplica