Mennta- og menningarmálaráðuneyti

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Allar auglýsingar

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku haustið 2012

21.6.2012

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Umsækjandi skal veita mennta- og menningarmálaráðuneyti upplýsingar um markmið námsins, fjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda og þá upphæð sem sótt er um.

Aðilar sem bjóða upp á fleiri en fimm námskeið skila aðeins inn einu umsóknareyðublaði, en því skal fylgja sundurliðað yfirlit þar sem fram koma upplýsingar um hvert námskeið og heildarfjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda, samanlagðan nemendastundafjölda, áætlaðan kostnað og heildarupphæð sem sótt er um. Að námskeiði loknu, áður en til lokagreiðslu styrks kemur og eigi síðar en 15. desember 2012, ber að senda inn lista með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðin og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 75% kennslustunda að lágmarki. Fækki námskeiðum, eða þátttakendum á námskeiðum, frá því sem upphaflega var áætlað skerðist styrkurinn hlutfallslega sem nemur fækkuninni.

Ráðuneytið hefur eftirlit með gæðum námskeiðahaldsins og áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiða. Þar með taldar eru upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra og starfsreynslu og það námsefni sem stuðst er við.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

  • Umsóknareyðublað
  • Úthlutunarreglur
  • Umsóknir skal senda á postur@mrn.is.
  •  Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2012.
Senda grein

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

www.menntamalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Lög og reglugerðir
  • Útgáfur
  • Stofnanir

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

Verkefni

  • Menningarmál
  • Menntamál
  • Vísinda- og háskólamál
  • Jafnréttismál
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Fjölmiðlamál
  • Nefndir
  • Málþing og ráðstefnur
  • Sjóðir og eyðublöð
  • Auglýsingar
    • Styrkjatorg
  • Erlent samstarf
  • Mat og úttektir
  • Samningar
  • Starfsleyfi
  • Úrskurðir og álit

Hvað finnst þér um vef mennta- og menningamálaráðuneytisins?

www.menntamalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Aðgengisstefna
    • Afgreiðsla
    • Fjármál
    • Fyrirspurnir
    • Laus störf
    • Málþing og ráðstefnur
    • Skipulag
    • Skjaldarmerki
    • Starfsfólk

  • Ráðherra
    • Ræður og greinar ráðherra
    • Þingstörf
    • Fyrirspurnir á AlþingiViðburðadagatal
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Menningarmál
    • MenntamálVísinda- og háskólamálÍþrótta- og æskulýðsmál
    • JafnréttismálFjölmiðlamál
    • NefndirMálþing og ráðstefnur  AuglýsingarSjóðir og eyðublöð
    • StarfsleyfiÚrskurðir og álit
    • Erlent samstarf

  • Útgáfur
    • Fréttir
    • Útgáfur DreifibréfMat og úttektir
    • Námskrár
    • Réttarheimildir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði mennta- og menningarmála-ráðuneytis
  • Stofnanir
    • Stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið

Samskipti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík Sjá kort
Sími 545 9500 - Bréfasími 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: postur@mrn.is - Fyrirspurnir - Fyrirvari - Aðgengisstefna

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska
  • Norska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármála- og
    efnahagsráðuneytið
  • Mennta- og
    menningarmálaráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Umhverfis- og
    auðlindaráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica