Mennta- og menningarmálaráðuneyti

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Allar auglýsingar

Embætti skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík laust til umsóknar

10.7.2012

Embætti skólameistara við Framhaldsskólann á Húsavík laust til umsóknar

Starfssvið

Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.

Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli nýrra laga.

Ráðning og kjör

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.

Umsóknir

Umsóknir  með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, föstudaginn 17. ágúst 2012.  Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

 

Senda grein

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

www.menntamalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Lög og reglugerðir
  • Útgáfur
  • Stofnanir

Þú ert hér: Verkefni > Auglýsingar >

Verkefni

  • Menningarmál
  • Menntamál
  • Vísinda- og háskólamál
  • Jafnréttismál
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Fjölmiðlamál
  • Nefndir
  • Málþing og ráðstefnur
  • Sjóðir og eyðublöð
  • Auglýsingar
    • Styrkjatorg
  • Erlent samstarf
  • Mat og úttektir
  • Samningar
  • Starfsleyfi
  • Úrskurðir og álit

Hvað finnst þér um vef mennta- og menningamálaráðuneytisins?

www.menntamalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Aðgengisstefna
    • Afgreiðsla
    • Fjármál
    • Fyrirspurnir
    • Laus störf
    • Málþing og ráðstefnur
    • Skipulag
    • Skjaldarmerki
    • Starfsfólk

  • Ráðherra
    • Ræður og greinar ráðherra
    • Þingstörf
    • Fyrirspurnir á AlþingiViðburðadagatal
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Menningarmál
    • MenntamálVísinda- og háskólamálÍþrótta- og æskulýðsmál
    • JafnréttismálFjölmiðlamál
    • NefndirMálþing og ráðstefnur  AuglýsingarSjóðir og eyðublöð
    • StarfsleyfiÚrskurðir og álit
    • Erlent samstarf

  • Útgáfur
    • Fréttir
    • Útgáfur DreifibréfMat og úttektir
    • Námskrár
    • Réttarheimildir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði mennta- og menningarmála-ráðuneytis
  • Stofnanir
    • Stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið

Samskipti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík Sjá kort
Sími 545 9500 - Bréfasími 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: postur@mrn.is - Fyrirspurnir - Fyrirvari - Aðgengisstefna

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska
  • Norska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármála- og
    efnahagsráðuneytið
  • Mennta- og
    menningarmálaráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Umhverfis- og
    auðlindaráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica