Hoppa yfir valmynd
14. mars 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til Noregsfarar

Stjórn sjóðsins „Þjóðhátíðargjöf Norðmanna“ auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða á árinu 2014.

Stjórn sjóðsins „Þjóðhátíðargjöf Norðmanna“ auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða á árinu 2014.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans: ,,að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli”. Ekki eru veittir styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, þ.m.t. samnorrænum sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.
Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum