Hoppa yfir valmynd
4. september 2014 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands laust til umsóknar

Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma.

Starfssvið
Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur
Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.

Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar.  Þekking og reynsla af fjármálum og rekstri er einnig mikilvæg. 

Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Ráðið er í starfið frá 1.  janúar 2015.

Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.

Umsóknir

  • Umsóknir  með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða á netfangið [email protected],  fyrir kl. 16:00, mánudaginn 22. september 2014. 
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2014.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 04. september 2014.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum