Forsíđugreinar

Ný námstćkifćri fyrir unga atvinnuleitendur

Mennta- og menningarmálaráđuneytiđ og félags- og tryggingamálaráđuneytiđ hafa undirritađ samkomulag um námstćkifćri á framhaldsskólastigi fyrir unga atvinnuleitendur. Samkomulagiđ er gert í framhaldi af sameiginlegri skýrslu ráđuneytanna: Ungt fólk án atvinnu – virkni ţess og menntun en skýrsluna er međal annars finna á vef mennta- og menningarmálaráđuneytisins.

Samkomulag ráđuneytanna felur í sér ađ stefnt er ađ ţví ađ fjölga námsúrrćđum međ ţví annars vegar ađ fjölga námsplássum á núverandi námsbrautum og hins vegar međ ţví ađ ţróa ný námsúrrćđi. Vinnumálastofnun er heimilađ ađ semja viđ framhaldsskóla um námsvist á núverandi námsbrautum fyrir fólk á aldrinum 18-24 ára sem eru án atvinnu og tryggt innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Mennta- og menningarmálaráđuneytiđ stofnar stýrihóp sem setur viđmiđ fyrir skipulag nýrra námsbrauta og annast samskipti viđ framhaldsskóla um uppbyggingu námsbrauta til framhaldsskólaprófs.

„Ég vona ađ ţetta samkomulag verđi til ţess ađ viđ getum komiđ betur til móts viđ ungt fólk án atvinnu. Ţađ er mikilvćgt, bćđi fyrir einstaklingana og samfélagiđ allt,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráđherra.



 

Share/Save/Bookmark