Fréttir flokkaðar eftir árum

Fagnaðarfundur íslensku þjóðarinnar með íslenska landsliðinu í handbolta

1.2.2010

  • Íslenska handboltalandsliðið 2010

Ríkisstjórnin, Reykjavíkurborg og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands bjóða til fagnaðarfundar íslensku þjóðarinnar í dag, mánudaginn 1. febrúar í tilefni af heimkonu íslenska landsliðsins í handbolta og annarra þátttakenda á EM í handbolta sem fram fór í Austurríki.

Ákveðið hefur verið að hátíðin fari fram í Laugardagshöll í Reykjavík og hefst hún kl. 17:45.

Þeir sem ætla að taka þátt í fagnaðinum eru hvattir til að mæta tímanlega, nota almenningssamgöngur til að komast í höllina eða leggja bílum sínum í hæfilegri fjarlægð frá samkomustaðnum til að greiða fyrir umferð.

Reykjavík 1. febrúar 2010



Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica