Fréttir flokkaðar eftir árum

Hugsaðu áður en þú sendir

4.2.2010

  • netöryggisdagur 2010

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.

Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.

      

Dagskrá

 
Setningarræða Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra 
Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?  Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: 
Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT 
Friðhelgi á jaðri netsins Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi
Þolmörkin færðust til Jónas Kristjánsson, ritstjóri
Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands:
Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Rannsókn mála tengd netinu Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Verðlaunaafhending Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
Pallborðsumræður
Veitingar
  • Málþingið verður sent beint út á vefnum. Vefútsending
  • Nánari upplýsingar er að finna á vef SAFT
Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica