Fréttir flokkaðar eftir árum

Veiting viðurkenningar og Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu

17.11.2011

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, við hátíðlega athöfn í Gerðubergi 16. nóvember. Þá fengu Stuðmenn sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt við eflingu íslenskrar tungu. Við athöfnina söng Halldóra Eyjólfsdóttir og Daði Jakobsson lét á trompet. Þau eru bæði nemendur í tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Meðleikari þeirra var Júlíana Rún Indriðadóttir. Vala Steingrímsdóttir og Starri Snær Valdimarsson lásu ljóð. Valgeir Guðjónsson frumflutti nýtt lag um íslenska tungu. Íslandsbanki reiðir fram verðlaunafé Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og fulltrúi bankans var viðstaddur athöfnina.

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2011
Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica