Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 29. desember sl. skrifuðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, undir þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.
Starfshópur um málefni framhaldsskóla hefur tekið til starfa. Honum er m.a. ætlað að endurskoða fyrirkomulag skólastarfs í framhaldsskólum og vinnu starfsmanna í ljósi framhaldsskólalaga, aðalnámskrár og laga um fimm ára kennaramenntun.
Lesa meiraMennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, hefur undirritað samninga við Háskólasetur Vestfjarða, Háskólafélag Suðurlands – Þekkingarnet á Suðurlandi og Þekkingarsetur Vestmannaeyja um starfsemi og þjónustu þessara aðila. Meginmarkmið samninganna er að bæta aðgengi íbúa að námi og stuðla að auknu samstarfi og samþættingu menntunar, rannsókna, fræðastarfs og atvinnuþróunar.
Lesa meiraKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Ari Kristinsson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna (FK) og Ragnar Bragason, formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL) undirrituðu í húsakynnum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands í dag Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012– 2015.
Lesa meira