Önnur úthlutun úr tónlistarsjóði 2007
Menntamálaráðherra hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir seinni helming þessa árs. Tónlistarsjóði bárust 77 umsóknir í sjötta sinn sem auglýst var eftir umsóknum. Heildarfjárhæð umsókna nam 77.313.590 kr. Veittir voru styrkir til 51 verkefnis að heildarfjárhæð 18.150.000 kr. Í lok júlí verður auglýst eftir umsóknum en þá verða eingöngu veittir ferðastyrkir. Að þessu sinni voru eftirfarandi styrkir veittir:
| Umsækjandi | Verkefni |
Styrkur |
| Kjarvalsstofa | Tónlistarhátíðin Bræðslan |
250.000 |
| Ópera Skagafjarðar | Tónleikahald og útgáfa |
300.000 |
| Guðbrandsstofnun | Tónleikröð |
500.000 |
| Gunnar Guðbjörnsson | Ferðastyrkur |
100.000 |
| Matthías Vilhjálmur Baldursson | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Hamrahlíðarkórinn | Ferðastyrkur |
800.000 |
| Martin J. Maddaford | Ferðastyrkur - útrás |
250.000 |
| Listahátíð í Neskirkju | Tónleikaröð |
300.000 |
| Guitar Islancio | Ferðastyrkur - útrás |
300.000 |
| Kór Menntaskólans í Reykjavík | Ferðastyrkur |
300.000 |
| Camerartica | Tónleikaröð |
400.000 |
| 12 Tónar ehf. | Útrásarverkefni |
400.000 |
| 12 Tónar ehf. | Kynningarstyrkur |
100.000 |
| Hljómsveitin múm | Tónleikaferð - útrás |
500.000 |
| Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves | Kynningar- og ferðastyrkur |
1.500.000 |
| Sigurður Flosason | Útgáfustyrkur |
200.000 |
| Dimma ehf. | Kynningarstyrkur |
100.000 |
| Nordic Affect | Tónleikaröð |
300.000 |
| Camerata Drammatica | Tónleikahald heima og erlendis |
500.000 |
| Camerata Drammatica | Tónleikahald |
100.000 |
| Ísafold - kammersveit | Tónleika- og útgáfustyrkur |
500.000 |
| Kristín Mjöll Jakobsdóttir | Tónleikastyrkur |
100.000 |
| Áhugamannafélagið Credo | Upptöku- og útgáfustyrkur |
250.000 |
| Kammerkór Suðurlands | Tónleika- og útgáfustyrkur |
200.000 |
| Framkvæmdanefnd Kökukonsertanna | Tónleikahald |
100.000 |
| Margrét Sigurðardóttir | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Íslensk tónverkamiðstöð | Kynningarstyrkur |
400.000 |
| Íslensk tónverkamiðstöð | Markaðsverkefni |
1.000.000 |
| Lavaland Records | Kynningarverkefni |
200.000 |
| Kristín Ragna Gunnarsdóttir | Upptökustyrkur |
100.000 |
| Schola cantorum - kammerkór | Tónleika- og upptökustyrkur |
300.000 |
| Valgeir Sigurðsson | Markaðsstarf |
200.000 |
| Shadow Parade | Tónleikahald og kynningarstarf - útrás |
250.000 |
| Ingvi Þór Kormáksson | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Jassklúbbur Egilsstaða | Tónlistarhátíð |
300.000 |
| Egill Örn Rafnsson | Tónleikaferð - útrás |
300.000 |
| Kvennakórinn Vox feminae | Tónleikahald og útgáfustyrkur |
300.000 |
| Hildur Ingveldard. Guðnadóttir | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Tónn í Tómið ehf. | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Tónlistarhús Laugarborgar | Tónleikaröð |
750.000 |
| Tölvutónn ehf. | Tónleikahald |
100.000 |
| Tónlistardagar í Dómkirkjunni | Tónleikaröð |
300.000 |
| Ung Nordisk Musik | Tónlistarhátíð |
3.000.000 |
| Bang ehf. | Markaðsstarf |
250.000 |
| Steingrímur Guðmundsson | Tónleika- og upptökustyrkur |
200.000 |
| Jóhann Gunnar Jóhannsson | Tónleikaferð og kynningarstarf - útrás |
500.000 |
| Jassklúbbur Ólafsfjarðar | Tónlistarhátíð |
250.000 |
| Juri Fedorov | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Benedikt Hermann Hermannsson | Útgáfustyrkur |
100.000 |
| Benedikt Hermann Hermannsson | Tónleikaferð - útrás |
300.000 |
| Grunnskóli Mýrdalshrepps | Útgáfustyrkur |
100.000 |
