Fréttatilkynningar

Skipun áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema - 29.12.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema. Lesa meira
 

Skipun í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga - 23.12.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Lesa meira
 

Boð á kynningarfund. Fjölbrautaskóli Snæfellinga, ný hugsun - 19.12.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og fulltrúar sveitarfélaganna á norðanverðu Snæfellsnesi undirrita í dag samninga um stofnun nýs framhaldsskóla, Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Lesa meira
 

Háskóli Íslands og menntamálaráðuneytið undirrita mikilvæga samninga um rannsóknir og kennslu - 19.12.2003

Föstudaginn 19. desember undirrituðu Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Páll Skúlason háskólarektor tvo samninga, annan um rannsóknir og hinn um kennslu, til næstu þriggja ára. Lesa meira
 

Skipun nefndar um eignarhald í fjölmiðlun - 19.12.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað nefnd sem skila skal greinargerð til ráðherra um það, hvort tilefni sé til að setja sérstaka löggjöf um eignarhald á fjölmiðlum. Lesa meira
 

Undirritun samninga um stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga - 19.12.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og fulltrúar sveitarfélaganna á norðanverðu Snæfellsnesi undirrituðu í dag samstarfssamning um húsnæði nýs framhaldsskóla, Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Lesa meira
 

Stofnfundur Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar - 17.12.2003

Stofnfundur Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar verður haldinn í dag, miðvikudag 17. desember 2003 kl. 15.30 í Iðnó. Lesa meira
 

Aðalsteinn Davíðsson hlýtur sænsk - íslensku menningarverðlaunin - 15.12.2003

Aðalsteinn Davíðsson orðabókarhöfundur hlýtur í ár menningarverðlaun Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.

Lesa meira

 

Fyrsti leiðtogafundurinn um upplýsingasamfélagið - 12.12.2003

Nauðsynlegt er að stuðla að menningarlegri fjölbreytni í upplýsingasamfélaginu sagði Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra á fyrsta leiðtogafundinum um upplýsingasamfélagið sem nú stendur yfir í Genf. Lesa meira
 

Staða skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga - 25.11.2003

Menntamálaráðuneytinu bárust átta umsóknir um stöðuna. Lesa meira
 

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2003 - 17.11.2003

Í dag var haldið málræktarþing og hátíðardagskrá í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem menntamálaráðherra afhenti Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2003 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Lesa meira
 

Málþing um samræmd próf við lok grunnskóla - 14.11.2003

Menntamálaráðuneytið stendur fyrir málþingi um samræmd próf við lok grunnskóla, föstudaginn 21. nóvember, í samvinnu við Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands og í samráði við Skólastjórafélag Íslands, Félag grunnskólakennara, Samband íslenskra sveitarfélaga, Námsmatsstofnun, Heimili og skóla og Umboðsmann barna. Lesa meira
 

Málþing menntamálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis 18. nóvember 2003 - Upplýsingatækni í menntun fatlaðra – bætt aðgengi - 13.11.2003

Menntamálaráðuneyti og félagsmálaráðuneyti standa að málþingi 18. nóvember 2003 þar sem markmiðið er að vekja athygli á notkun upplýsingatækni í menntun fatlaðra. Málþingið er haldið í tilefni af ári fatlaðra Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu 2003 - 12.11.2003

Dagur íslenskrar tungu 2003. Dagsins er minnst með margvíslegu móti. Lesa meira
 

Fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2005 - 31.10.2003

Gabríela Friðriksdóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2005. Lesa meira
 

Frá þingi Norðurlandaráðs 28. og 29. október 2003 - 30.10.2003

Á fundi sínum í Ósló í dag fjölluðu norrænir ráðherrar menntamála og rannsókna um svokallaða Hvítbók, þar sem lagt er til að Norðurlönd verði leiðandi svæði í rannsóknum og nýsköpun. Lesa meira
 

Heimsókn menningarmálaráðherra Kína - 22.10.2003

Menningarmálaráðherra Kína, Sun Jiazheng, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag, 22. október, í boði Tómasar Inga Olrich, menntamálaráðherra. Í för með ráðherranum verða embættismenn úr kínverska menningarmálaráðuneytinu. Lesa meira
 

Alþjóðasáttmáli um verndun menningarerfða samþykktur - 17.10.2003

Aðalráðstefnu UNESCO lauk í París 17. október. Samþykktur var alþjóðasáttmáli um verndun menningarerfða eftir nokkurra ára undirbúning. Lesa meira
 

Úthlutun úr fornleifasjóði - 17.10.2003

Stjórn Fornleifasjóðs hefur nýlega lokið síðari úthlutun úr sjóðnum á árinu 2003. Lesa meira
 

Stytting náms til stúdentsprófs - 29.9.2003

Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, leggur nú fram skýrslu verkefnisstjórnarinnar þar sem áhrif styttingar eru metin og nokkrum hugmyndum um mögulega útfærslu styttingar varpað fram. Lesa meira
 

Menntamálaráðherra boðar til blaðamannafundar í dag - 29.9.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, boðar til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag, um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Lesa meira
 

Afhending Evrópumerkisins - 26.9.2003

Evrópumerkið fyrir árið 2003 var afhent á evrópska tungumáladeginum 26. september og fór afhendingin fram í hátíðarsal Háskóla Íslands en þar fór fram málþing á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Lesa meira
 

Sérstök áhersla á samstarf æðri menntastofnana - 19.9.2003

Þriðji ráðherrafundur Bologna ferlisins um samstarf á sviði æðri menntunar í Evrópu var haldinn í Berlín 18. og 19. september 2003. Af Íslands hálfu sótti Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, fundinn. Lesa meira
 

Samkeppni um gerð veggspjalds í tengslum við leiðtogafund um upplýsingasamfélagið - 4.9.2003

Samkeppni um gerð veggspjalds í tengslum við leiðtogafund um upplýsingasamfélagið Lesa meira
 

Viljayfirlýsing um samstarf í húsnæðismálum framhaldsskólanna í Reykjavík - 2.9.2003

Samkomulag hefur tekist milli menntamálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar vegna húsnæðismála framhaldsskólanna í Reykjavík. Lesa meira
 

Samstarf ríkis og Reykjavíkurborgar um húsnæði framhaldsskóla í Reykjavík - 2.9.2003

Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Þórólfur Árnason borgarstjóri munu efna til sameiginlegs blaðamannafundar í dag klukkan 16:00. Lesa meira
 

Undirritun samnings um dreifmenntun í grunnskólum í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi - 20.8.2003

Undirritun samnings um dreifmenntun í grunnskólum í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Lesa meira
 

Undirritun samnings um dreifmenntun - 19.8.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, Brynjólfur Gíslason, bæjarstjóri í Vesturbyggð og Ólafur Magnús Birgisson sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps, undirrita á morgun samning um dreifmenntun. Lesa meira
 

Heimsókn Philippe Busquin, yfirmanns vísinda- og tæknimála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins - 11.8.2003

Philippe Busquin, vísindastjóri Evrópusambandsins og yfirmaður vísinda- og tæknimála í framkvæmdastjórn sambandsins verður staddur hér á landi dagana 12.-15. ágúst í boði menntamálaráðherra. Lesa meira
 

Skipun stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna - 7.8.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til næstu tveggja ára frá 1. ágúst 2003 að telja. Lesa meira
 

Rannsókna- og nýsköpunarhús við Háskólann á Akureyri - 10.7.2003

Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýju rannsókna- og nýsköpunarhúsi við Háskólann á Akureyri. Lesa meira
 

24 nýir staðir á heimsminjaskrá UNESCO - 9.7.2003

Nefnd UNESCO um heimsminjar (World Heritage Committee) samþykkti á fundi sínum í París í byrjun júlí að bæta við 24 nýjum stöðum á heimsminjaskrána. Lesa meira
 

Fyrsta skóflustungan að nýju rannsókna- og nýsköpunarhúsi við Háskólann á Akureyri - 9.7.2003

Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, mun á morgun taka fyrstu skóflustunguna að nýju rannsókna- og nýsköpunarhúsi við Háskólann á Akureyri. Lesa meira
 

Skipun í útvarpsráð - 3.7.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað formann og varaformann útvarpsráðs á því kjörtímabili ráðsins sem nú er að hefjast. Lesa meira
 

Úthlutun Þýðingarsjóðs 2003 - 18.6.2003

Þýðingarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, hefur lokið úthlutun 2003. Lesa meira
 

Opnun íslensku sýningarinnar á Feneyjatvíæringnum - 13.6.2003

Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra opnaði í dag íslensku sýninguna á alþjóðlega myndlistartvíæringnum í Feneyjum. Listamaðurinn Rúrí er fulltrúi Íslands að þessu sinni, valin af myndlistarnefnd menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Nýr aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Borgar Þór Einarsson - 6.6.2003

Borgar Þór Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra. Lesa meira
 

Úthlutun úr fornleifasjóði - 9.5.2003

Stjórn Fornleifasjóðs hefur nýlega lokið úthlutun úr sjóðnum. Er það í fyrsta skipti sem úthlutað er úr Fornleifasjóði, sem stofnaður var með lögum árið 2001. Lesa meira
 

Skipun í embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri - 9.5.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað Jón Má Héðinsson í embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Lesa meira
 

Úthlutun styrkja til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu - 9.5.2003

Úthlutun styrkja til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu á skólaárinu 2003-2004. Lesa meira
 

Styrkir til framhaldsnáms í Japan - 2.5.2003

Japönsk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa Íslendingum til framhaldsnáms við háskóla í Japan. Lesa meira
 

Samningur um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum - 30.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Jóhann Guðni Reynisson, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, undirrituðu í gær samning um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal. Lesa meira
 

Undirritun samnings um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum - 28.4.2003

Undirritun samnings um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum. Lesa meira
 

eSchola 2003 - 25.4.2003

Nú í apríl hófst á Netinu viðburður sem kallast eSchola 2003 en hann stendur til 9. maí nk. Það er Evrópska skólanetið sem stendur að eSchola en Ísland er aðili að því. Lesa meira
 

Samkomulag um byggingu menningarhúsa á Ísafirði - 25.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, undirrituðu í dag samkomulag um endurbyggingu þriggja menningarhúsa á Ísafirði. Lesa meira
 

Undirritun samkomulags um menningarhús á Ísafirði - 25.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, undirrita í dag kl.11 samkomulag um menningarhús á Ísafirði. Lesa meira
 

Textun á innlendu dagskrárefni í Sjónvarpinu - 23.4.2003

Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að íslenskt dagskrárefni verði öllu aðgengilegra og 19. maí 2001 var samþykkt þingsályktunartillaga þess efnis að fela menntamálaráðherra að stuðla að því að íslenskt sjónvarpsefni verði textað, eftir því sem við verði komið, til hagsbóta fyrir heyrnarlaust og heyrnarskert fólk. Lesa meira
 

Blaðamannafundur - 23.4.2003

Menntamálaráðherra, félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra boða til blaðamannafundar í dag um textun á innlendu efni í sjónvarpi í Þjóðmenningarhúsinu kl. 15:45. Lesa meira
 

Undirritun samnings um byggingu nýrrar stjórnunar- og kennsluálmu við Menntaskólann á Egilsstöðum - 11.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og forystumenn Austur-Héraðs og Fellahrepps undirrituðu í dag samning um byggingu nýrrar stjórnunar- og kennsluálmu við Menntaskólann á Egilsstöðum. Lesa meira
 

Stofnfundur einkahlutafélagsins Austurhöfn - TR ehf. - 10.4.2003

Í dag héldu fulltrúar ríkis og borgar stofnfund einkahlutafélags til að annast framkvæmd samkomulags sem undirritað var í apríl á síðasta ári um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við Reykjavíkurhöfn. Ákveðið hefur verið að nafn félagsins verði Austurhöfn - TR ehf. Lesa meira
 

Undirritun samnings um byggingu stjórnunar- og kennsluálmu við Menntaskólann á Egilsstöðum - 10.4.2003

Undirritun samnings um byggingu stjórnunar- og kennsluálmu, fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum föstudaginn 11. apríl kl. 12:00. Fulltrúar fjölmiðla velkomnir. Lesa meira
 

Úthlutun styrkja vegna upplýsingatækni í almenningsbókasöfnum - 8.4.2003

Menntamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum af fé því sem veitt er vegna upplýsingatækni í almenningsbókasöfnum í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 36/1997, um almenningsbókasöfn. Lesa meira
 

Samkomulag um byggingu menningarhúss á Akureyri - 7.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í dag samkomulag um byggingu menningarhúss á Akureyri. Lesa meira
 

Undirritun samkomulags um byggingu menningarhúss á Akureyri - 7.4.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar undirrita í dag samkomulag um byggingu menningarhúss á Akureyri. Lesa meira
 

Styrkir til nýsköpunar á Menntagátt - gagnvirkt námsefni - 4.4.2003

Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um gerð gagnvirks námsefnis sem verður á Netinu og aðgengilegt í leit Menntagáttar. Lesa meira
 

Undirritun samnings um sameiginlegt átak í fræðslumálum og starfsmenntun á vinnumarkaði - 2.4.2003

Í dag, 2. apríl 2003, hefur verið undirritaður þjónustusamningur milli menntamálaráðuneytis annars vegar og Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um verkefni og fjárframlög til eflingar og endurskipulagningar á starfsfræðslu í atvinnulífinu, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 13. desember 2001. Lesa meira
 

Nám og styrkir við Balassi Bálinst Institute í Búdapest - 2.4.2003

Menntamálaráðuneytinu hafa borist upplýsingar um nám í ungverskri tungu, sögu Ungverjalands og menningu fyrir erlenda námsmenn við Balassi Bálint Institute í Búdapest. Lesa meira
 

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2003 - 1.4.2003

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar Þróunarsjóðs leikskóla, að veita styrki að upphæð alls 2.7 milljónir króna til samtals 13 verkefna. Lesa meira
 

Skipun í embætti forstöðumanns Rannsóknamiðstöðvar Íslands - 1.4.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað Hans Kristján Guðmundsson í embætti forstöðumanns Rannsóknamiðstöðvar Íslands til fimm ára frá 1. apríl 2003 að telja. Lesa meira
 

Úthlutun styrkja til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi 2003 - 1.4.2003

Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum af fjárlögum yfirstandandi árs til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum námsgreinum á framhaldsskólastigi. Lesa meira
 

Verkefni sem gerir tölvum kleift að skilja íslenskt talmál - 31.3.2003

Í dag undirrituðu menntamálaráðherra, forstjórar Landsíma Íslands hf., Nýherja hf., Hex ehf. og Grunns-Gagnalausna ehf., ásamt rektor Háskóla Íslands, samning um tungutækniverkefni sem styrkt verður úr tungutæknisjóði menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Undirritun samnings um tungutækniverkefnið Hjal - 31.3.2003

Í dag, mánudaginn 31. mars klukkan 13:30, undirrita menntamálaráðherra, forstjórar Landsímans hf., Nýherja hf., Hex ehf. og Grunns-Gagnlausna ehf. ásamt rektor Háskóla Íslands samning um tungutækniverkefni sem styrkt verður úr tungutæknisjóði menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Blaðamannafundur um samræmd stúdentspróf - 27.3.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, boðaði í dag til blaðamannafundar um breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð um samræmd stúdentspróf. Auk ráðherra sátu fulltrúar úr stjórn Félags framhaldsskóla og stjórn Félags framhaldsskólanema fyrir svörum. Lesa meira
 

Uppbygging Síldarminjasafnsins á Siglufirði - 27.3.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og forsvarsmenn Síldarminjasafnsins á Siglufirði undirrituðu þann 26. mars 2003 samning um framlag ríkisins til frekari uppbyggingar Síldarminjasafnsins. Lesa meira
 

Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla 2003 - 26.3.2003

Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla 2003 - Tilgangur sjóðsins er að efla nýjungar, tilraunir og nýbreytni í skipulagi náms, kennsluháttum, námsgögnum og mati í grunnskólum. Lesa meira
 

Samkomulag um byggingu menningarhúss í Vestmannaeyjum - 21.3.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar undirrituðu í dag samkomulag um byggingu menningarhúss í Vestmannaeyjum. Lesa meira
 

Úthlutun Menningarborgarsjóðs 2003 - 32 milljónir til 57 verkefna - 20.3.2003

Úthlutun úr Menningarborgarsjóði fór fram í Ásmundarsafni miðvikudaginn 19.mars og er það í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Lesa meira
 

Breytingar á reglugerð um samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum - 19.3.2003

Menntamálaráðuneyti hefur gefið út nýja reglugerð um samræmd stúdentspróf, á grundvelli 24. greinar laga um framhaldsskóla. Í reglugerðinni er komið til móts við athugasemdir Félags framhaldsskóla og Félags framhaldsskólanema við fyrri reglugerð en reglugerðin hefur verið rædd á fundum sem ráðuneytið hefur haldið með fulltrúum þessara félaga. Lesa meira
 

Efling á stöðu leiklistar í skólakerfinu - 18.3.2003

Á fundi um stöðu leiklistar í grunnskólum og framhaldsskólum, sem haldinn var að frumkvæði Fræðsludeildar Þjóðleikhússins, 17. mars sl., kom eftirfarandi fram í máli Tómasar Inga Olrich, menntamálaráðherra: Lesa meira
 

Skipun ráðuneytisstjóra - 17.3.2003

Menntamálaráðherra hefur skipað Guðmund Árnason í embætti ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins frá og með 16. mars 2003. Lesa meira
 

Samningur um rekstur og uppbyggingu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri - 17.3.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í dag samning um uppbyggingu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri. Lesa meira
 

Endurmenntunarsjóður grunnskóla - úthlutanir 2003 - 14.3.2003

Úthlutað hefur verið úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla í fimmta sinn. Lesa meira
 

Umsækjendur um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands - 5.3.2003

Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands rann út kl. 16:00, mánudaginn 3. mars sl. Menntamálaráðuneytinu bárust sextán umsóknir um embættið. Lesa meira
 

Samningur um lokaáfanga í uppbyggingu kennslumiðstöðvar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi - 5.3.2003

Vorið 1998 var undirritaður samningur milli ríkis og sveitarfélaganna á Vesturlandi um endurbyggingu og verulega stækkun vesturálmu Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi en hún er elsti hluti skólahússins, byggð um 1960. Þessi viðbygging var fyrsti áfanginn í áætlun um uppbyggingu þess sem nefnt hefur verið Kennslumiðstöð FVA. Lesa meira
 

Undirritun byggingarsamnings við Fjölbrautaskóla Vesturlands - 4.3.2003

Á morgun, miðvikudaginn, 5. mars 2003, munu menntamálaráðherra og bæjarstjóri Akraness undirrita byggingarsamning við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Lesa meira
 

Skipun í embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands - 4.3.2003

Settur menntamálaráðherra, Árni M. Mathiesen, hefur skipað Þórarin Guðnason í embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands til fimm ára frá 28. febrúar 2003 að telja. Lesa meira
 

Styrkir til atvinnuleikhópa 2003 - 3.3.2003

Menntamálaráðuneytið hefur að tillögu Leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2003 Lesa meira
 

Styrkir til atvinnuleikhópa - boð á samkomu í Iðnó, 3. mars 2003 kl. 16.00 - 3.3.2003

Við athöfn í Iðnó í dag, mánudag 3. mars 2003, kl. 16.00, mun menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, tilkynna hvaða atvinnuleikhópar hljóta styrki til leiklistarstarfsemi árið 2003. Lesa meira
 

Hús Þjóðminjasafnsins með nýjum grunnsýningum verður enduropnað á sumardaginn fyrsta 2004 - 24.2.2003

Endurbótum á Safnhúsinu við Suðurgötu lýkur á árinu og undirbúningur fyrir opnun hússins og nýjar grunnsýningar stendur yfir af fullum krafti. Gerð nýrra grunnsýninga er viðamikið verkefni, þær verða stærstu sýningar á minjum og sögu sem opnaðar hafa verið hér á landi. Lesa meira
 

Samkomulag menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um verkefni á sviði byggðamála - 24.2.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, hafa undirritað samkomulag um átak í uppbyggingu menntunar og menningar á landsbyggðinni. Undirritunin fór fram í Háskólanum á Akureyri mánudaginn 24. febrúar kl. 10:30. Lesa meira
 

Bygging nýrrar álmu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja - 21.2.2003

Í dag var undirritaður samningur um byggingu nýrrar álmu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Aðilar að samningnum eru menntamálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti fyrir hönd ríkisins og Gerðahreppur, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Vatnsleysustrandarhreppur fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum. Lesa meira
 

140 ára afmæli Þjóðminjasafns Íslands - 21.2.2003

Í tilefni 140 ára afmælis Þjóðminjasafns Íslands boðar menntamálaráðherra til blaðamannafundar í bókasafni Þjóðminjasafnsins að Lyngási 7 í Garðabæ, mánudaginn 24. febrúar nk. kl. 13:15. Lesa meira
 

Styrkir til samstarfsverkefna í upplýsingatækni - 18.2.2003

Menntamálaráðuneytið hefur veitt styrki til sautján samstarfsverkefna í upplýsingatækni. Styrkirnir nema samtals 1.600.000 krónum sem renna til sex þróunarskóla og sautján samstarfsskóla. Lesa meira
 

Framhaldsskólar og símenntunarmiðstöðvar tengjast háhraðaneti - 14.2.2003

Framhaldsskólar og símenntunarmiðstöðvar tengjast háhraðaneti. Nýtt háhraðanet, sem tengir saman framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar um land allt, verður formlega tekið í notkun í dag. Lesa meira
 

Lykiltölur um menntamál í Evrópu - 12.2.2003

Ritið Key Data on Education in Europe 2002 er komið út. Í því er að finna margvíslegar samanburðarhæfar upplýsingar um menntamál í 30 Evrópulöndum, þ.e. aðildarlöndum Evrópusambandsins, EFTA/EES löndunum og nýju aðildarlöndunum. Útgefandi er Eurydice, upplýsinganet um menntamál, sem starfrækt er á vegum Evrópusambandsins. Lesa meira
 

Skipun í embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands - 11.2.2003

Menntamálaráðherra hefur í dag skipað Laufeyju Guðjónsdóttur í embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands til fimm ára frá 17. febrúar 2003. Lesa meira
 

Framkvæmd Olweusarverkefnis gegn einelti og niðurstöður könnunar í grunnskólum haustið 2002 - 7.2.2003

Framkvæmd Olweusarverkefnis gegn einelti og niðurstöður könnunar í grunnskólum haustið 2002. Olweusarverkefni gegn einelti er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimilis og skóla. Lesa meira
 

Stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi - 6.2.2003

Samkomulag hefur tekist milli menntamálaráðherra og fulltrúa sveitarfélaga á Snæfellsnesi um að hafinn verði undirbúningur að stofnun framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi. Lesa meira
 

Tilnefning Þingvalla á heimsminjaskrá UNESCO - 27.1.2003

Menntamálaráðherra Tómas Ingi Olrich boðar til samkomu í Þjóðmenningarhúsinu, þriðjudaginn 28. janúar kl. 15.00, í tilefni af því að Davíð Oddsson forsætisráðherra og Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefndar, munu undirrita skjöl sem tilnefna Þingvelli á heimsminjaskrá UNESCO. Lesa meira
 

Íþróttahús fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands - 24.1.2003

Í dag verður undirritaður samningur um byggingu íþróttahúss fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Lesa meira
 

Undirritun samnings um byggingu nýrrar kennsluálmu við Menntaskólann í Kópavogi - 20.1.2003

Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, undirrita í dag samning ríkisins og Kópavogsbæjar um byggingu nýrrar kennsluálmu við Menntaskólann í Kópavogi. Lesa meira
 

Norræna skólahlaupið 2002 - 14.1.2003

Tæplega þriðjungur grunnskólanemenda hér á landi tók þátt í norræna skólahlaupinu í september - desember 2002 og var það í 18. sinn sem skólahlaup þetta fór fram. Lesa meira
 

Skipun kvikmyndaráðs - 13.1.2003

Skipað hefur verið í Kvikmyndaráð til þriggja ára samkvæmt ákvæði 2. gr. kvikmyndalaga nr. 137/2001 sem tóku gildi 1. janúar sl. Lesa meira
 

Reglugerð um samræmd stúdentspróf - 8.1.2003

Fyrsta samræmda stúdentsprófið verður haldið þann 8. janúar árið 2004. Þá verður einungis prófað í íslensku en árið 2005 verða einnig haldin samræmd stúdentspróf í stærðfræði og ensku. Lesa meira
 

Umsækjendur um embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands - 6.1.2003

Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands rann út kl. 16:00, föstudaginn 3. janúar sl. Menntamálaráðuneytinu bárust tólf umsóknir um embættið. Umsækjendur eru: Lesa meira
 

Umsækjendur um embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands - 6.1.2003

Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands rann út föstudaginn 3. janúar sl. Menntamálaráðuneytinu bárust sautján umsóknir um embættið. Lesa meira
 

Senda grein


Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica