Fréttatilkynningar

Embætti skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði - 30.12.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Ársæl Guðmundsson í embætti skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði til fimm ára. Lesa meira
 

Reglugerð nr. 986/2010 um breytingu á reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 584/2010 - 28.12.2010

Birt hefur verið í Stjórnartíðindum reglugerð nr. 986/2010 um breytingu á reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 584/2010

Lesa meira
 

Opnun íslenskrar heimasíðu um heimsminjar - 10.12.2010

Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi.

Lesa meira
 

Opnun íslenskrar heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO - 8.12.2010

Fimmtudaginn 9. desember kl. 11 verður ný heimasíða um heimsminjasamning UNESCO opnuð í mennta- og menningarmálaráðuneytinu af Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra.

Lesa meira
 

Kynning á frumvarpi til nýrra laga um Þjóðskjalasafn Íslands - 8.12.2010

Unnið hefur verið að heildarendurskoðun laga um Þjóðskjalasafn Íslands á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Lesa meira
 

Styrkveitingar til fagfélaga kennara 2010 - 7.12.2010

Á árinu 2010 varð breyting á fyrirkomulagi við styrkveitingar ráðuneytisins til fagkennarafélaga með það að markmiði að gera verklag skýrara.

Lesa meira
 

Niðurstöður PISA rannsóknarinnar 2009 - 7.12.2010

Íslenskir nemendur bæta stöðu sína í lesskilningi samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA rannsóknar á lesskilningi og læsi á stærðfræði og náttúrufræði á meðal 15 ára nemenda.

Lesa meira
 

Samstarf við aðila vinnumarkaðarins um framhaldsfræðslu - 24.11.2010

Samstarfsyfirlýsing um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild var undirrituð 24. nóvember.

Lesa meira
 

Ný drög að aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla - 19.11.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur birt drög að nýrri aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á vef ráðuneytisins. Lesa meira
 

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2011 - 19.11.2010

Innritun í dagskóla er til 26. nóvember 2010 á skólavef mennta- og menningarmálaráðuneytis, menntagatt.is.

Lesa meira
 

Samstarf um uppbyggingu framhaldsskóla í Reykjavík - 17.11.2010

Mennta- og menningarmálaðherra og borgarstjóri skrifuðu í dag undir yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf ríkis og borgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík til ársins 2014. Samkomulagið tryggir að leyst verður úr húsnæðisvanda þriggja skóla á tímabilinu 2011 til 2014.

Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu 2010 - 16.11.2010

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2010 voru afhent á hátíðardagskrá í Landnámssetrinu í Borgarnesi.

Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu 2010 - 12.11.2010

Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður nú fagnað í fimmtánda sinn. Í skólum landsins og á vegum margra annarra stofnana og samtaka verður dagsins minnst með einhverju móti.

Lesa meira
 

Embætti skrifstofustjóra lögfræðisviðs - 1.10.2010

Fjórar umsóknir bárust um embætti skrifstofustjóra lögfræðisviðs mennta- og menningarmálaráðuneytis sem auglýst var laust til umsóknar 24. júlí sl.

Lesa meira
 

Samstarf við Menntaskólann Hraðbraut endurskoðað - 1.10.2010

Ríkisendurskoðun hefur, að beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytis, lokið úttekt á framkvæmd þjónustusamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við Menntaskólann Hraðbraut og birt skýrslu með niðurstöðum hennar.

Lesa meira
 

Umsækjendur um embætti skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði - 22.9.2010

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Iðnskólann í Hafnarfirði rann út föstudaginn 17. september sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sextán umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og tólf körlum.

Lesa meira
 

Ræða stjórnsýsluhindranir og framtíð erfðalindasamstarfs á Norðurlöndum - 6.9.2010

Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun, þriðjudaginn 7. september

Lesa meira
 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja - 25.8.2010

Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar um hvernig mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.

Lesa meira
 

Áfangaskýrsla um þekkingarsetur á Íslandi - 13.8.2010

Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra um þekkingarsetur á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu. Skýrslan tekur til 189 setra um land allt og sýnir að þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni er margbrotin og einkennist af smáum en fjölbreyttum einingum.

Lesa meira
 

Stefna um opinbera háskóla - 9.8.2010

Stefna mennta- og menningarmálaráðherra er að standa vörð um starfsemi opinberu háskólanna með því að stofna samstarfsnet þeirra með hugsanlega sameiningu í huga. Lesa meira
 

Þáttur háskólasamfélagsins í hruninu rannsakaður - 4.8.2010

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að veita eina milljón króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja rannsóknir á íslensku háskólakerfi og þætti þess í hruninu. Lesa meira
 

Tónlistarsjóður 2010 - 21.7.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir síðari helming þessa árs.

Lesa meira

 

Ríflega 155 milljónir króna til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum - 12.7.2010

Ríflega 155 milljónum króna hefur verið úthlutað til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum. Öllum umsækjendum sem uppfylltu úthlutunarreglur var úthlutað styrk í allt að þrjá mánuði. Lesa meira
 

Staða skólameistara við Borgarholtsskóla - 8.7.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn skólanefndar skipað Bryndísi Sigurjónsdóttur í embætti skólameistara skólans til fimm ára. Lesa meira
 

Skýrsla um aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum - 1.7.2010

Starfshópur um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum hefur gefið út skýrslu með 30 tillögum að samhæfðum aðgerðum gegn einelti. Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að styðja sérstaklega við aðgerðirnar með því að veita 9 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu.

Lesa meira
 

Nýr samstarfssamningur mennta- og menningarmálaráðherra og Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra undirritaður - 1.7.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, og formaður Heimilis og skóla, Sjöfn Þórðardóttir, undirrituðu samstarfssamning, þriðjudaginn 29. júní, vegna stuðnings samtakanna við foreldra skólabarna. Lesa meira
 

Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2010 - 1.7.2010

Öllum nemendum úr 10. bekk sem sóttu um að hefja nám í framhaldsskóla í haust hefur verið boðin skólavist. Betur hefur gengið að útvega öllum nýnemum skólavist en undanfarin ár vegna breytts fyrirkomulags á innritun. Innritun nýnema lauk 11. júní síðastliðinn. Lesa meira
 

Kortlagning hagrænna áhrifa skapandi greina á Íslandi - 29.6.2010

Nú er í fyrsta sinn unnið að því að greina og meta hagræn áhrif skapandi greina á Íslandi á heildstæðan hátt. Fimm ráðuneyti og Útflutningsráð Íslands fjármagna verkefnið sem unnið er að frumkvæði samráðsvettvangs skapandi greina. Lesa meira
 

Mennta- og menningarmálaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun áætlun um aukið samstarf og verkaskiptingu opinberu háskólanna með hugsanlega sameiningu að markmiði. - 15.6.2010

Áætlunin gerir ráð fyrir því að innan fárra ára verði starfandi öflugt net opinberra háskóla sem bjóði upp á fjölbreytt háskólanám á öllum sviðum sem og betri nýtingu fjármuna. Fyrsta skrefið í þá átt er að samræma og samhæfa ýmiss konar stoðþjónustu og stjórnkerfi háskólanna, s.s. tölvukerfi, nemendaskrár, kennsluskrár, launakerfi og fleira. Lesa meira
 

Æskulýðssjóður 2. úthlutun 2010 - 19.5.2010

Æskulýðssjóði bárust alls 31 umsókn um styrk að upphæð 15.585.381 kr. vegna annarrar úthlutunar Æskulýðssjóðs árið 2010. Um er að ræða 9 umsóknir alls að upphæð 1.300.000 kr. Lesa meira
 

Máldagi fyrir Stafkirkjuna á Heimaey undirritaður - 17.5.2010

Máldagi fyrir Stafkirkjuna á Heimaey var undirritaður 17. maí 2010 í forsætisráðuneytinu. Lesa meira
 

Tvær nýjar námskrár í listum - 12.5.2010

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra viðstödd kynningu á nýjum námskrám fyrir tveggja ára diplómanám í teikningu og textíl í húsnæði Kraums hönnunarhúss. Lesa meira
 

Mennta- og menningarmálaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins heimsóttu Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands - 11.5.2010

Mennta-og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og starfsfólk ráðuneytisins heimsóttu Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands mánudaginn 10. maí. Lesa meira
 

Skrifað var undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Þórbergsseturs - 11.5.2010

Skrifað var undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Þórbergsseturs þann 5. maí síðastliðinn. Þórbergssetur er fræðasetur á fæðingarstað Þórbergs Þórðarsonar að Hala í Suðursveit. Lesa meira
 

Staða skólameistara við Borgarholtsskóla - 6.5.2010

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Borgarholtsskóla rann út mánudaginn 3. maí sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórtán umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og tíu körlum. Lesa meira
 

Úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna fyrir sumarið 2010 - 5.5.2010

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur úthlutað um 115 millj. kr. úr sjóðnum. Alls bárust sjóðnum 603 umsóknir og hafa þær aldrei verið fleiri. Stjórn sjóðsins úthlutaði styrk til 255 verkefna sem 351 námsmaður vinnur við í sumar og samsvarar það 823 mannmánuðum. Úthlutunina má finna á vef Lesa meira
 

Styrkur til framhaldsnáms á háskólastigi í Japan - 5.5.2010

Ríkisstjórn Japans mun veita 2 íslenskum ríkisborgurum Monbukagakusho (MEXT) styrki til rannsóknarnáms á framhaldsstigi í Japan. Lesa meira
 

Styrkur til iðntæknináms í Japan - 5.5.2010

Stjórnvöld í Japan hyggjast veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til náms í iðntæknigrein. Lesa meira
 

Styrkur til grunnnáms í Japan á háskólastigi - 5.5.2010

Stjórnvöld í Japan ætla að veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til grunnnáms á háskólastigi. Lesa meira
 

Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, í dag föstudaginn 30. apríl - 30.4.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, í dag föstudaginn 30. apríl kl. 12:30-16:45.

Menningarþingið verður sent út í vefútsendingu á vef ráðuneytisins.

Lesa meira
 

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu - 26.4.2010

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu sem Íþróttaskóli ársins 2010. Lesa meira
 

Menningarlandið 2010 - menningarþing 30. apríl 2010 - 21.4.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45.

Lesa meira
 

Íþróttaskóli ársins 2010 er Kvennaskólinn í Reykjavík - 21.4.2010

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mun miðvikudaginn 21. apríl kl. 11.15 veita Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu sem Íþróttaskóli ársins 2010. Lesa meira
 

Æskulýðssjóður fyrsta úthlutun 2010 - 19.4.2010

Æskulýðssjóði bárust alls 35 umsóknir að upphæð 18.288.500 kr.um styrki vegna fyrstu úthlutunar Æskulýðssjóðs árið 2010. Lesa meira
 

Úrslit í samkeppni um hönnun framhaldsskólabyggingar í Mosfellsbæ - 16.4.2010

Úrslit í samkeppni um hönnun húsnæðis Framhaldsskólans í Mosfellsbæ voru kynnt í dag. Tillaga arcihitecture.cells, alþjóðlegs nets arkitekta og hönnuða, bar sigur úr bítum. Lesa meira
 

Embætti skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ - 15.4.2010

Tíu umsóknir bárust um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Lesa meira
 

Atvinnutækifærum námsmanna fjölgað - 14.4.2010

Tillaga Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um aðgerðir til til þess að fjölga atvinnutækifærum námsmanna í sumar var samþykkt á fundi ríkisstjórnar Íslands í dag. Lesa meira
 

Fréttatilkynning frá stjórn fornleifasjóðs - 7.4.2010

Úthlutun úr fornleifasjóði 2010. Stjórn fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2010. Lesa meira
 

Fjölgun sumarstarfa námsmanna - 26.3.2010

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hafa, fyrir hönd ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar, ákveðið að leggja aukið fé í Nýsköpunarsjóð námsmanna. Lesa meira
 

Úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla haustið 2009 - 25.3.2010

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að hver grunnskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs. Lesa meira
 

Þróunarsjóður námsgagna 2010 - 9.3.2010

Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað styrkjum af fjárlögum 2010 Lesa meira
 

Könnun á menningarneyslu Íslendinga - 8.3.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands boðar til kynningarfundar um niðurstöður úr könnuninni:
Íslensk menningarvog - könnun á menningarneyslu Íslendinga

Lesa meira
 

Embætti skólameistara Framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð - 3.3.2010

Sjö umsóknir bárust um embætti skólameistara Framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Lesa meira
 

Styrkir til atvinnuleikhópa 2010 - 1.3.2010

Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga.

Lesa meira

 

Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs - 26.2.2010

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska menntamálaráðuneytisins og norska menningar- og kirkjumálaráðuneytisins. Hið árlega framlag er nú um 1.250.000 norskar krónur. Lesa meira
 

88,5 milljónum úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar - 25.2.2010

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að eftirstöðvum Menningarsjóðs útvarpsstöðva, samtals 88,5 milljónir króna, verði úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar fyrir hljóðvarp og sjónvarp í samræmi við úthlutnarreglur sjóðsins. Lesa meira
 

Menntaþing 2010 - Heildstæð menntun á umbrotatímum - 24.2.2010

Menntaþing verður haldið í Valsheimilinu að Hlíðarenda þann 5. mars nk.Yfirskrift þingsins er Heildstæð menntun á umbrotatímum og er tilgangur þess að efna til opinnar umræðu um menntastefnu. Lesa meira
 

Samkomulag um listaverk í eigu Arion banka - 23.2.2010

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, og Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka undirrituðu samkomulagið í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Lesa meira
 

Undirritað samkomulag um listaverk í eigu Arion banka - 23.2.2010

Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í dag klukkan 16:30 verður undirritað samkomulag mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis annars vegar og Arion banka hins vegar. Lesa meira
 

Alþjóðaár um aukinn skilning milli ólíkra menningarheima - 18.2.2010

Alþjóðaár um aukinn skilning milli ólíkra menningarheima (International Year for the Rapprochement of Cultures) hefst formlega í dag í höfuðstöðvum UNESCO í París Lesa meira
 

Staða skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ - 18.2.2010

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ rann út mánudaginn 15. febrúar sl. Lesa meira
 

Tónlistarsjóður 2010 - 4.2.2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir fyrri helming þessa árs. Lesa meira
 

Breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti - 28.1.2010

Þann 1. febrúar verða þær breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti að Sigtryggur Magnason lætur af störfum sem aðstoðarmaður ráðherra. Lesa meira
 

Íþróttasjóður 2010 - 28.1.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögur Íþróttanefndar um styrkveitingar, alls að upphæð kr. 15.690.000 til 78 verkefna.
Lesa meira
 

Tillögur starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um almannaútvarp á Íslandi - 27.1.2010

Í meðfylgjandi skjali er teknar saman helstu niðurstöður starfshóps um Ríkisútvarpið ohf. og tillögur um úrbætur í ljósi þeirrar reynslu sem komin er á opinbera hlutafélagaformið og vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru á fjölmiðlamarkaði.

Lesa meira
 

Dagur leikskólans 6. febrúar 2010 - 25.1.2010

Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar.

Lesa meira
 

Framlengdur frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki vegna þjónustu við börn - 8.1.2010

Verkefnisstjórn hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um styrki vegna þjónustu við langveik börn og börn með ADHD greiningu til 27. janúar næstkomandi. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Lesa meira
 

Æskulýðssjóður 4. úthlutun 2009 - 8.1.2010

Æskulýðssjóði bárust alls 29 umsóknir að upphæð 22.888.000 kr.um styrki vegna fjórðu úthlutunar Æskulýðssjóðs árið 2009 Lesa meira
 

Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu vísinda og háskóla - 4.1.2010

Tuttugu og sex umsóknir bárust um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu vísinda og háskóla sem auglýst var laust til umsóknar 4. desember sl. Lesa meira
 

Senda grein


Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica