Hoppa yfir valmynd
9. maí 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróunarsjóður leikskóla árið 2005

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2005

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:

  • A. Starf með yngri börnum í leikskóla.
  • B. Lýðræði í leikskólastarfi.

Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneytinu. Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands samkvæmt sérstökum samningi við menntamálaráðuneytið.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 2.900 þús. kr. til samtals 8 verkefna.

Eftirtalin verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði leikskóla skólaárið 2005-2006:

Styrkþegi Heiti verkefnis Upphæð
Háskólinn á Akureyri Guðrún Alda Harðardóttir og Sigríður Síta Pétursdóttir Lengi býr að fyrstu gerð kr.

1.000.000

Hjallastefnan ehf. Nemendastýrð framkvæmd vals í leikskólastarfi Hjallastefnunnar kr.

500.000

Leikskólaskrifstofa Kópavogs Námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogsbæjar, með sérstakri áherslu á lýðræði barnanna. kr.

400.000

Leikskólinn Holt Lifandi lestur, framhald kr.

100.000

Leikskólinn Lyngholt Nám í gegnum íþróttir kr.

250.000

Leikskólinn Pálmholt Einn, tveir og byrja! - Námsefni fyrir þau yngstu kr.

250.000

Leikskólinn Tröllaborgir Aukin gæði náms - þróunarstarf í leikskólanum Tröllaborgum kr.

200.000

Seljaborg Félagsfærninám, sjálfstæðir einstaklingar kr.

200.000

Samtals kr.

2.900.000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum