Heimild fyrir lesblinda nemendur ađ sleppa lesskilningshluta samrćmdra prófa í íslensku í 4. og 7. bekk í grunnskólum haustiđ 2006
Í kjölfar óska nokkurra foreldra og kennara um upplestur fyrir lesblinda nemendur á lesskilningshluta samrćmdra prófa í íslensku í 4. og 7. bekk haustiđ 2006 hefur menntamálaráđherra beint ţví til Námsmatsstofnunar ađ eftirfarandi verđi komiđ á framfćri viđ alla grunnskóla: Telji foreldrar og viđkomandi kennarar ađ lesblindir nemendur í skólanum muni bera skađa af ţví ađ taka lesskilningshluta íslenskuprófsins međ núverandi fyrirkomulagi er ţeim heimilt ađ sleppa ţeim hluta prófsins. Heimildin er bundin viđ samrćmd próf í íslensku í 4. og 7. bekk haustiđ 2006.
Í ţessu sambandi bendir menntamálaráđuneyti á ađ upplestur á lesskilningshluta prófs í íslensku mćlir ekki lesskilning heldur hlustun sem einnig er hluti af íslenskuprófinu. Ekki er vitađ til ţess ađ foreldrar og kennarar almennt leggist gegn ţví ađ lagt sé mat á lestrarfćrni nemenda sem glíma viđ lestrarörđugleika međ ţví ađ ţeir ţreyti lesskilningshluta prófsins.
Jafnframt er hér tilkynnt ađ menntamálaráđherra mun skipa nefnd til ađ fjalla um málefni lesblindra nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Skal nefndin m.a. skila tillögum um hvernig haga skuli próftöku lesblindra nemenda á samrćmdum prófum og um heimildir til undanţága og frávika. Í ráđuneytinu hefur á undanförnum mánuđum fariđ fram undirbúningsvinna ađ stefnumörkun í málefnum lesblindra nemenda.
Á vef menntamálaráđuneytis má finna fréttatilkynningu, dags. 9. október 2006, um hvernig nú er stađiđ ađ stuđningi viđ nemendur sem fá frávik viđ töku samrćmdra próf, ţ.m.t. lesblinda.

