Hoppa yfir valmynd
9. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2008

Úthlutað hefur verið úr Þróunarsjóði leikskóla fyrir skólaárið 2008-2009.

Úthlutað hefur verið úr Þróunarsjóði leikskóla fyrir skólaárið 2008-2009. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:

  • Hvernig læra leikskólabörn?
  • Barnamenning - leikir og listir leikskólabarna.
    Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneyti. Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum ráðuneytisins og SRR (Símenntun, rannsóknir, ráðgjöf).

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki til eftirtalinna 9 verkefna skólaárið 2008-2009:

Verkefni Styrkþegi

Upphæð

A. Hvernig læra leikskólabörn?
Fjörulallar, það erum við Leikskólinn Bakki

750.000

Heimspeki og tónlist Leikskólinn Vallarsel

900.000

High/Scope - virkt nám á fyrsta skólastigi Leikskólarnir Mánagarður, Sólgarður og Leikgarður

700.000

Samfélagið í einingakubbum Leikskólinn Brákarborg

500.000

B. Barnamenning - leikir og listir leikskólabarna
Frá gráma til gleði: Skólalóðin okkar Náttúruleikskólinn Krakkakot

900.000

Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf - framhaldsverkefni Leikskólinn Urðarhóll

400.000

C. Önnur verkefni
Leikskólakennarar ígrunda og rýna í eigið starf Leikskólinn Tjarnarsel

300.000

Mál fyrir alla - málþjálfunarefni fyrir börn á leikskólaaldri Sigurlaug V. Einarsdóttir

200.000

Samstarf Ægisborgar og KR - Hreyfing, leikur, heilsubót Leikskólinn Ægisborg

400.000

Alls

5.050.000






Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum